fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fréttir

Heimsins fyrsti farfuglaflugvöllur rís í Kína

Græða upp gamla sorphauga – Bætir bæði kjör fólks og fugla

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 9. apríl 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérhannað svæði tileinkað fuglum verður byggt í kínversku stórborginni Tianjin við austurströnd landsins. Framkvæmdir hefjast undir lok þessa árs og á þeim að ljúka 2018. Hugmynd sú sem í fyrstu virðist út í hött kann þó að reynast snjallari ef nánar er að gáð. Slík nýsköpun kemur ekkert á óvart þegar Kínverjar eru annars vegar.

Friðsöm flughöfn ætluð fuglum einum, þar sem skóglendi kemur í stað steypu og staura. Fuglaverndarsamtökin Lingang Bird Sanctuary stóðu fyrir alþjóðlegri samkeppni um skipulag 60 hektara svæðis í hafnarborginni Tianjin. Heiðurinn að hugmyndinni á ástralska hönnunarstofan McGregor Coxall sem varð með drögum sínum að „farfuglaflughöfninni“ hlutskörpust í keppninni. Fyrirtækið sérhæfir sig í landslagsarkitektúr og hefur aðsetur í þremur löndum.

Áningarstaður fyrir farfugla

Um ræðir feiknastórt náttúruverndarsvæði í hjarta borgarinnar, frekar en eiginlega flughöfn. Svæðið þjónar margþættum tilgangi og verður jafnframt almenningsgarður. Meiningin er að búa farfuglum áningarstað á leið sinni austur á boginn, en svæðið liggur við hina svonefndu austurasísku flugleið
(East Asian-Australasian Flyway).

Samanlagt mynda níu stærstu flugleiðirnar samgöngunet farfugla um heiminn. Þeirra lengst er sú austurasíska, sem auðkennd er með rauðum lit á kortinu.
Langt flug fyrir fuglana Samanlagt mynda níu stærstu flugleiðirnar samgöngunet farfugla um heiminn. Þeirra lengst er sú austurasíska, sem auðkennd er með rauðum lit á kortinu.

Þessa leið fljúga ríflega 50 milljónir farfugla ár hvert. Gera skipuleggjendur verkefnisins fastlega ráð fyrir því að farfuglar muni sjá hag sinn í því að „millilenda“ á svæðinu og safna kröftum fyrir áframhaldandi flug. Austurasíska flugleiðin nær yfir samtals 22 lönd og eiga fuglar því dágóðan spöl eftir að stoppi sínu í Kína loknu.

Fljúga þúsundir kílómetra fastandi

Fjöldi fugla á að baki yfir 11 þúsund kílómetra ferðalag þegar þeir koma að „flugvellinum“ í Tianjin. Ferðalagið er krefjandi og eru fuglarnir á fastandi maga alla þá tíu daga sem það varir.

„Flugleiðakerfi farfuglanna er hreint náttúruundur,“ segir Adrian McGregor, forstjóri og stofnandi McGregor Coxall hönnunarstofunnar. Hann bætir því við að vonast sé til þess að „flugvöllurinn“ reynist veigamikill liður í verndun farfuglategunda í útrýmingarhættu.

Munu vonandi „fylla tankana“

Þrátt fyrir erfitt flug til Kína hafa fuglarnir hingað til forðast að eiga viðkomu í Tianjin. Það er vel skiljanlegt þar sem stórborgir eru jafnan engar náttúruparadísir fyrir fugla. Fæði er af skornum skammti og rýmið sömuleiðis – og til að bæta gráu ofan á svart er byggðin við strandlengjuna sífellt að breiða meira úr sér. En breyting þar á mun eiga sér stað í náinni framtíð. Þökk sé fyrirhuguðum framkvæmdum er ráðgert að þúsundir farfugla muni lenda á vellinum í Tianjin og „fylla tankana“ fyrir næsta flugtak.

Þúsundir farfugla munu koma til með að nýta sér aðstöðuna. Þeir eiga að baki allt að 10.000 kílómetra flug – völlurinn ætti því að koma í góðar þarfir.
Örmagna eftir ferðina Þúsundir farfugla munu koma til með að nýta sér aðstöðuna. Þeir eiga að baki allt að 10.000 kílómetra flug – völlurinn ætti því að koma í góðar þarfir.

Verkefnið er fjármagnað af Asíska þróunarbankanum (Asian Development Bank) og efnahags- og tækniþróunarsviði Tianjinborgar. Það er lítil furða að vinningshugmyndin hafi fallið vel í kramið, en náttúruvernd er ofarlega á stefnuskrá bakhjarla verkefnisins.

Vin í miðri stórborg

Fyrirhuguð fuglaheilsulind er ekki í minni kantinum, en 20 hektarar jafngilda 75 stórum fótboltavöllum. Framkvæmd af slíkri stærðargráðu krefst því umtalsverðrar undirbúningsvinnu. Græða á upp svæðið til að líkja sem best eftir náttúrulegu umhverfi fugla. Því er brýnt að undirbúa jarðveginn vel. Strandlengjan var áður nýtt undir sorphauga og er fyrst á dagskrá að stinga þá upp. Eiginlegar framkvæmdir hefjast síðan í lok þessa árs.

Uppkast af farfuglaflugvellinum í Tianjin, 150 kílómetra suður af Peking. Stærð hans samsvarar 75 fótboltavöllum af fullri stærð.
Griðasvæðið nýtist einnig sem almenningsgarður Uppkast af farfuglaflugvellinum í Tianjin, 150 kílómetra suður af Peking. Stærð hans samsvarar 75 fótboltavöllum af fullri stærð.

Manngerð vötn

Gerð ýmissa vatnasvæða er einnig í bígerð. Manngert stöðuvatn mun prýða vinina sem og stór fenjasvæði og síki. Þriðjungur svæðisins verður ræktaður skógi og síðan fyllt upp í afganginn með kjarri og öðrum gróðri. Loks verður byggður útsýnispallur fyrir gesti og gangandi. Þaðan verður hægt að fylgjast með fuglunum, þ.e. ef þeir fela sig ekki allir í skóginum. Ef allt gengur að óskum mun völlurinn nýtast jafnt fuglum sem vísindamönnum og náttúruunnendum.

Við uppbyggingu farfuglaflugvallarins verður stuðst við sjálfbært kerfi sem hreinsar allt frárennsli og regn jafnharðan. Er þetta mikil framför og verður komið á laggirnar í fleiri stórborgum landsins, að sögn Jack Qian, framkvæmdastjóra McGregor Coxall í Shanghai.

Látlaus loftmengun í Kína

Hafnarborgin Tianjin er meðal fjölmennustu borga í Kína með íbúafjölda upp á 15 milljónir. Þar er daglegt brauð að beina þurfi flugumferð annað vegna loftmengunar.

Skyggnið í Tianjin þessa dagana. Orsakavaldar eru vélknúin umferð og verksmiðjuiðnaður.
Ekki besta útsýnið Skyggnið í Tianjin þessa dagana. Orsakavaldar eru vélknúin umferð og verksmiðjuiðnaður.

Lítið sem ekkert skyggni hefur verið í borginni og er svifryksmengunin komin langt yfir heilsuverndarmörk. Samkvæmt rannsóknum vísindamanna fellur í Kína rúm 1,5 milljón manns í valinn ár hvert sökum loftmengunar. „Grænt griðasvæði í formi víðáttumikils fuglaverndarsvæðis kemur einnig til með að gera öðrum íbúum borgarinnar gott, þ.e. hinum ófleygu,“ segir Adrian McGregor.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Mörg þúsund flugvélar hafa orðið fyrir alvarlegri truflun – Böndin beinast að Rússlandi

Mörg þúsund flugvélar hafa orðið fyrir alvarlegri truflun – Böndin beinast að Rússlandi
Fréttir
Í gær

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun
Fréttir
Í gær

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda