fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Fréttir

Leitað að Birnu í Flatahrauni: „Þetta er eina vísbendingin sem við höfum“ Örvæntingarfull móðir óskar eftir hjálp

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Sunnudaginn 15. janúar 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum að leita ásamt vinum og ættingjum í Flatahrauni. Það hefur verið nefnt að það gæti verið gott að skoða Heiðmörk,“ segir Sigurlaug Hreinsdóttir í samtali við DV. Ekkert hefur spurst til dóttur hennar, Birnu Brjánsdóttur en síðast er vitað um ferðir hennar aðfaranótt laugardags en hún sást yfirgefa skemmtistaðinn Húrra.

Birnu er fædd árið 1996 og er 170 sentímetrar á hæð og um það bil 70 kíló, með sítt rauðleitt hár. Birna var klædd í svart­ar galla­bux­ur, ljósgráa peysu, svart­an flís­jakka með hettu og svarta Dr. Mart­in skó. Sigurlaug segir lögreglu ekki hafa mikið að byggja á í augnablikinu.

„Eina vísbendingin sem lögreglan hefur í augnablikinu er að eftir að símagögn hafa verið skoðuð þá var síminn hennar í Flatahrauni um klukkan 5 en síðan virðist slokkna á símanum rétt hjá gömlu slökkvistöðinni,“ segir Sigurlaug en vinir og vandamenn leita nú á svæðinu.

„Þetta er eina vísbendingin sem við höfum núna um hvarf Birnu minnar,“ segir Silla sem kveðst þiggja alla mögulega aðstoð. „Hún er vön að skila sér heim snemma og hún hefur ekki sést online á samskiptamiðlum. Þá er mjög ólíkt henni að ekki sé hægt að ná í hana. Við þiggjum alla hjálp sem hægt er að fá.“

Upplýsingar um ferðir Birnu berist til lögreglu í síma 444 1000.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

María Sigrún fær uppreist æru – Fréttaskýringin sem var stöðvuð verður sýnd á mánudaginn

María Sigrún fær uppreist æru – Fréttaskýringin sem var stöðvuð verður sýnd á mánudaginn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur spyr hvort ríkið ætli að láta Harald komast upp með að hafa gefið starfsmönnum hundruði milljóna í heimildaleysi

Vilhjálmur spyr hvort ríkið ætli að láta Harald komast upp með að hafa gefið starfsmönnum hundruði milljóna í heimildaleysi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Theodór: Átakanlegt að horfa á lítil börn fá kíghósta – „Eiginlega bara hósta þangað til þau blána og missa meðvitund“ 

Theodór: Átakanlegt að horfa á lítil börn fá kíghósta – „Eiginlega bara hósta þangað til þau blána og missa meðvitund“ 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vaxandi reiði meðal íbúa Gaza í garð Hamas

Vaxandi reiði meðal íbúa Gaza í garð Hamas
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Land heldur áfram að rísa í Svartsengi

Land heldur áfram að rísa í Svartsengi