Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar og oddviti í Suðvesturkjördæmi
„Björt framtíð leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, breitt samráð og baráttu gegn fúski og sérhagsmunagæslu. Okkar hlutverk er að hafa góð áhrif og auka samvinnu í íslensku samfélagi. Miðjuflokkur eins og Björt framtíð getur haft góð áhrif bæði til hægri og vinstri.
Björt framtíð vill t.d. umbætur í landbúnaði, sjávarútvegi og auðlindamálum. Við leggjum áherslu á frjálst samkeppnisumhverfi, langtímastöðugleika, frjálslyndi og leggjum áherslu á að kosið verði um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Við viljum axla ábyrgð á loftslagsmálum í anda frjálslyndisstefnunnar sem segir að við fjölþjóðlegum vandamálum verði að bregðast með lausnum. Við köllum eftir heildrænni stefnumörkun í ferðamálum og að snúið verði frá stóriðjustefnu sem byggir á nýtingu takmarkaðra auðlinda. Björt framtíð styður við að menntun og menning verði nýja stóriðjan. Þannig byggjum við upp fjölbreyttara og sterkara atvinnulíf þar sem allir fá notið sín. Fólk þarf að hafa trú og traust á að þetta sé öruggt og skemmtilegt samfélag til að búa og starfa í, að hér sé gott að alast upp og ala upp.
Það er engin hætta á því að Björt framtíð gefi afslátt af þessum grunnprinsippum. Það er engin hætta á því að Björt framtíð taki ekki afstöðu. Við erum ekki í stjórnmálum til að búa til valdastofnun heldur til þess að hafa góð áhrif á íslenskt samfélag.“
…
Íslendingar ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa fulltrúa sína til Alþingis. Úr nægu er að velja fyrir kjósendur en níu stjórnmálahreyfingar bjóða fram í öllum kjördæmum landsins. Auk þess bjóða þrjár aðrar hreyfingar fram í færri kjördæmum.
DV leitaði til allra framboðanna og bauð þeim að reyna eftir megni að sannfæra kjósendur um að veita þeim atkvæði sín. Þetta eru þeirra áherslur.
Hér má sjá helstu áherslur Pírata.