fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Hilary Duff setti fylgjuna í þeyting og finnst það „ennþá ógeðslegt“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 24. september 2020 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir tveimur árum eignaðist Hilary Duff dóttur sína, Banks. Á þeim tíma sagði hún frá því að hún geymdi fylgjuna og setti hana í þeyting (e. smoothie) sem hún drakk síðan.

„Þetta var besti hristingur sem ég hef fengið. Ég hef ekki smakkað svona góðan hristing síðan ég var tíu ára gömul. Hann var fullur af kaloríum, djúsi og ávöxtum og var æðislegur,“ sagði Hilary í viðtali í nóvember 2018.

Hilary var á dögunum gestur í hlaðvarpsþættinum Good For You með Whitney Cummings. Hún sagði að henni þykir það „ennþá ógeðslegt“ að hugsa til þess að hún hafi drukkið fylgjuna sína. Ástæðan fyrir því að hún hafi ákveðið að innbyrða hluta af fylgjunni var vegna allra vítamínanna og næringarefnanna í fylgjunni.

„Ég borðaði ekki alla fylgjuna, setti bara smá í þeyting með banana, jarðarberjum og fann ekki einu sinni bragðið,“ segir Hilary.

Horfðu á hana segja frá því hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta