Blómarós: Leikkonan Scarlett Johansson ljómaði eins og sólin umkringd blómum á bændamarkaði í New York í vikunni.
Stjörnurnar hafa oft ótakmarkað fé til að ráðstafa í útlit sitt; hvort sem um ræðir hár, húð, andlit, líkama eða fatnað. Þær ráða stílista, einkakokka, hárgreiðslumeistara, förðunarfræðinga, einkaþjálfara, lýtalækna, persónulega gúrúa og svo mætti lengi telja. Ekki veitir af þar sem líf þeirra er stöðugt undir smásjá. En það eru ekki allir dagar rauða dregils dagar og það er gaman að fylgjast með því hverju fræga fólkið velur að klæðast í amstri hversdagsins. Þessar stjörnur komust á listann þessa vikuna.
Óður til fortíðar: Tískufrömuðurinn og áhrifavaldurinn Olivia Palermo var smart frá toppi til táar á röltinu í Brooklyn. Hún var í retró satínpilsi frá Max & Co, blárri blússu í stíl, silfruðum Roger Vivier bomsum og utan um hefðbundna andlitsgrímu bar hún silkiklút frá Le Scarf.Djarfur djammgalli: Söngkonan Iggy Azalea er eiginlega bara geggjuð í þessum þrönga, vintage Jean Paul Gaultier samfesting á leiðinni út á lífið í Los Angeles. Það er eins og hann sé bókstaflega sniðinn á hana.Arabíunætur: Angelina Jolie á leiðinni í hádegisverð að hitta son sinn Pax. Leikkonan spókaði sig um í Hollywood í skósíðum kjól, sandölum og með andlitsgrímu í stíl og minnti helst á persónu úr 1001 nótt.Eins og kóngur: Söngvarinn Nick Cannon sést sjaldan án þess að vera með túrban um höfuðið en hann hefur sagt að slík höfuðföt láti honum líða eins og kóngi.Allt í gangi: Það er eitthvað svo dásamlegt við þessa mynd af leikkonunni Zoe Kravitz sem var tekin í Brooklyn í síðustu viku. Allt frá lakkskónum og stelpulegu sokkunum að plasthönskunum, grímunni og heyrnartólunum.Barbie bleik: Erfðaprinsessan Paris Hilton var eins og Barbie dúkka til fara í hjólatúr á bleika hjólinu sínu í Beverly Hills á dögunum.Minna er meira: Fyrirsætan Winnie Harlow á leið til hádegisverðar á Il Pastaio í Beverly Hills í ákaflega efnislitlum klæðnaði og geislaði af sjálfsöryggi.Sæt í bleiku: Suri Cruise, dóttir Katie Holmes og Tom Cruise, á leiðinni í hádegisverð ásamt vinkonum sínum í New York.