fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Leikfélag Akureyrar býður konum á Kvenfólk á kvennafrídaginn

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. október 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur og Hjörleifur fara á kostum í Kvenfólki.
Leikfélag Akureyrar býður konum á sýninguna Kvenfólk í Samkomuhúsinu þann 24. október í tilefni Kvennafrídagsins.
Sýningin hefst klukkan 15.00 og er aðgangur ókeypis. Kvenfólk er 323. sviðsetning Leikfélags Akureyrar og hefur fengið frábæra dóma og mikið lof áheyrenda en þetta er nýtt íslenskt sviðsverk eftir Hund í óskilum.
Dúettinn Hund í óskilum skipa þeir Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen, en þeir eru bæði höfundar og flytjendur verksins. Þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis kvennahljómsveitar í sýningunni. Í Kvenfólk fara þeir Hjörleifur og Eiríkur á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur.
Sýningin hefur verið sýnd fyrir fullu húsi frá því hún var frumsýnd þann 29.september og er uppselt á sýningarnar 20. og 21. október og aðeins örfá sæti laus á sýningarnar 27. og 28. október og miðar fara hratt i nóvember.
Í tilefni af Kvennafrídeginum hafa LA og Hundur í óskilum ákveðið að bjóða öllum konum á þessa frábæru sýningu án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir. Hægt er að nálgast miða á Kvennafrídagssýninguna samdægurs. Miðasalan opnar klukkan 13.00 í Samkomuhúsinu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.