fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Hljóð & Sönnun Súpa Skál – Samsýning á verkum eftir Ívar Glóa og Loga Leó

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 3. september 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðastliðinn laugardag opnaði samsýning Ívars Glóa og Loga Leó Gunnarsson, Hljóð & sönnun súpa skál, í Gallery Port, Laugavegi 23b. Sýningin stendur til 13. september næstkomandi.

Í sýningunni velta þeir upp hugmyndum um staðsetningu og skynjun áhorfandans gagnvart sýningarhlutum og myndlistarsýningunni sjálfri. Ólíklegt er að sýningargestir muni átta sig á því að þeir séu staddir í Gallery Port á Laugavegi, í Reykjavík, á Íslandi. Líklega mun það ekki renna upp fyrir þeim fyrr en þeir ganga út af sýningunni og ranka við sér. Þeir gætu líka áttað sig á því ef þeir fara á Google maps í símanum sínum og kanna staðsetningu sína.

Ívar Glói Gunnarsson (f. 1992) útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2014 og hefur auk þess stundað nám í Hochschule für bildende Künste (HFBK) í Hamburg og Konsthögskolan i Malmö. Nýlegar sýningar eru meðal annars Round and round; north, east, south, west on repeat í Delfi, Malmö, Floating, hanging, cloudy, lit up floor plans & Ikea Snapshots í Bismút, Reykjavík, og útgáfa á 7 tommu vínyl plötu sem heitir ‘Into the groove: A vinyl record for DJs and the places they pervade’.

Hann býr og starfar í Reykjavík.

Heimasíða.

Logi Leó Gunnarsson (f. 1990) útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2014. Upphafspunkturinn í verkum hans eru yfirleitt hljóð. Hann vinnur oft með hugmyndina um augnablik í skúlptúrum sínum og innsetningum. Í því felst oft að finna lykkju í hreyfingu, einangra hana, gefa henni óskipta athygli og finna í henni hið óvænta og einfalda. Nýlegar sýningar sem hann hefur tekið þátt í eru Addis Video Art Festival í Addis Ababa, Things interact briefly and disappear í Harpe 45 í Lausanne og Deep Inside: Fimmti alþjóðlegi tvíæringurinn fyrir unga myndlistarmenn í Moskvu. Hann býr og starfar í Reykjavík.

Heimasíða.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi