Ítalski tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Robert Miles er látinn, 47 ára að aldri, eftir skammvinn veikindi. Robert sló rækilega í gegn með lag sitt Children sem komst í efsta sæti vinsældarlista í tólf löndum árið 1996. Miles vann Brit-verðlaunin árið 1997.
Samkvæmt frétt BBC lést þessi ítalski tónlistarmaður á Ibiza í gær. Hann fæddist í Sviss þann 3. nóvember árið 1969 en var ítalskur ríkisborgari.
Eftir að hafa slegið í gegn með lag sitt Children kom hann tveimur öðrum lögum á topp 10 listann í Bretlandi, Fable og One & One, og gaf í það heila út fimm plötur.
Fjölmargir tónlistarmenn hafa minnst Miles á samfélagsmiðlum síðan andlát hans spurðist út.