fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Lítt þekkt ættartengsl: Ógegnsæismenn og gegnsæismaðurinn

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 11. febrúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spjótin standa nú á bræðrunum Kristjáni Snorra og Eyjólfi Vestmann Ingólfssonum sem standa að Flokki heimilanna. Flokkur heimilanna bauð fram til Alþingis árið 2013 og fékk rúmlega 30 milljónir úr ríkissjóði. Kristján Snorri er formaður flokksins og segir starfsemina vera í fullum gangi þrátt fyrir að flokkurinn hafi ekki boðið sig fram 2016 og 2017 og ætli heldur ekki í framboð í ár. Kristján vildi ekkert tala við RÚV um málið fyrir skemmstu og sagðist ekki ætla að veita viðtal um málið næstu fimmtíu árin. Svo virðist sem flokkurinn leggi ekki mikla áherslu á gagnsæi í störfum sínum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Það sem fáir vita er að náfrændi þeirra bræðra er einnig í stjórnmálum og leggur þar mikla áherslu á gagnsæi. Móðir þeirra Kristjáns Snorra og Eyjólfs Vestmann er María Kristjánsdóttir, systir Svans Kristjánssonar sem er faðir Halldórs Auðar Svanssonar, borgarfulltrúa Pírata.

Það væri forvitnilegt að heyra hvað lýðræðisráðið sem Halldór Auðar stýrir í Reykjavík segði um framferði frænda hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 3 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short