Leifur er sterkasti fatlaði maður Íslands í sitjandi flokki
Fyrir fjórum árum stefndi Leifur Leifsson á jöklaferð á heimagerðum sleða. Undirbúningsferlið krafðist styrktarþjálfunar og hóf hann þá að æfa hjá Crossfit Reykjavík. Í dag er hann sterkasti fatlaði maður Íslands í sitjandi flokki og síðar í mánuðinum keppir hann fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu fyrir fatlaða í aflraunum sem haldið verður á Englandi.
„Þetta byrjaði upphaflega á því að ég ætlaði upp á Hvannadalshnjúk á handknúnum sleða og þess vegna vantaði mig stað til styrktarþjálfunar. Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri hjá Crossfit Reykjavík, bauð mér þá að æfa hjá þeim. Síðan hef ég fengið allt sem ég hef þurft til æfinga þar og þau stutt gríðarlega vel við bakið á mér.“
Leifur er augljóslega afar þakklátur öllu starfsfólki og æfingafélögum hjá Crossfit Reykjavík en hann segir fatlaða eiga afar takmarkaðan aðgang að líkamsræktarstöðvum á Íslandi.
„Ég hef verið í hjólastól alla ævi og aldrei verið mikið fyrir íþróttir. Mín kynslóð fatlaðra var meira og minna þvinguð í sund því það átti að vera allra meina bót. En ef maður er þvingaður í íþróttir þá finnst manni þær ekki skemmtilegar. Þegar ég fékk í fyrsta sinn óheftan aðgang að líkamsræktarstöð hjá Crossfit Reykjavík heillaði sá heimur mig algjörlega. Fötlun mín hefur aldrei verið neitt vandamál þar og alltaf er fundin lausn á öllu svo ég geti tekið fullan þátt í æfingum.“
Á daginn starfar Leifur sem þjónustufulltrúi hjá þjónustumiðstöð Vesturbæjar en óhætt er að segja að hann sé kolfallinn fyrir kraftlyftingunum því langmestum frítíma sínum eyðir hann við æfingar.
„Já, það má eiginlega segja að ég eigi ekki önnur áhugamál í augnablikinu enda mikill tími sem fer í þetta. Mér finnst þetta svo gaman og mér líður svo vel af þessari æfingu. Ég æfi 2,5 klukkustundir á dag, sex daga vikunnar. Mér finnst líka gaman að hlusta á tónlist og geri mikið af því í og með, en það eina sem ég geri núna í mínum frítíma er að lyfta lóðum.“
Það má með sanni segja að þrotlausar æfingar hafi skilað Leifi árangri því fyrir skömmu vann hann titilinn „sterkasti fatlaði maður Íslands“ og með því þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í Mancehester á Englandi þann 16. ágúst næstkomandi.
„Fyrir nokkrum misserum datt mér í hug að taka þátt í keppninni Sterkasti fatlaði maður Íslands og nefndi það í kjölfarið við nokkra þjálfara hjá Crossfit Reykjavík. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og allir lögðust á eitt með mér til að þetta gæti orðið að veruleika. Guðjón Hafliðason hefur áratugalanga reynslu af kraftlyftingaþjálfun og hann bauðst til þess að þjálfa mig fyrir keppnina. Reynsla og þjálfun hans hefur verið mér ómetanleg. Hann hafði ekki komið að þjálfun fatlaðra áður en lagðist bara yfir þetta og aðlagaði alla þjálfun að mér.“
Guðjón mun fylgja sínum manni á heimsmeistaramótið og eru þeir félagarnir spenntir að sjá hvernig keppinautarnir erlendis standa að æfingum.
„Ég stefni á að gera mitt allra besta á heimsmeistaramótinu og hlakka til að sjá hvað menn eru að gera þarna úti. Hvert kollegarnir eru að stefna erlendis og hvað þessir stóru karlar eru að gera. Svo er bara að sjá hvað getur nýst mér í framhaldinu hér heima. Þetta verður án efa dýrmætt efni í reynslubankann.“
Í dag, föstudag, stendur Crossfit Reykjavík fyrir svokölluðu „Partý Woddi“ þar sem sérstök stuðæfing verður í boði fyrir alla æfingafélaga stöðvarinnar. Frjáls framlög sem safnast á æfingunni renna í styrktarsjóð Leifs fyrir heimsmeistaramótið.
„Þessi samstaða frá æfingafélögunum hefur afskaplega mikið að segja fyrir mig. Föstudagsæfingin er enn eitt dæmið um hvað þau standa öll vel við bakið á mér og þetta eflir mig til frekari afreka,“ segir Leifur að lokum, gríðarlega jákvæður og spenntur yfir heimsmeistaramótinu.