fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

Hjalti harmi sleginn eftir atvik við Krónuna

„Ég mun aldrei kvarta aftur yfir mínum fyrsta heims vandamálum“

Kristín Clausen
Föstudaginn 12. ágúst 2016 19:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég mun aldrei kvarta aftur yfir því að lífið sé eitthvað erfitt.“ Þetta segir Hjalti P. Finnsson grafískur hönnuður og listamaður í tengslum við atvik sem átti sér stað við Krónuna í Hafnarfirði í gær.

Eldri maður að gramsa eftir dósum

Þegar Hjalti nálgaðist inngang Krónunnar sá hann mann gramsa í ruslinu fyrir utan verslunina í leit að dósum, en hann opnaði sig fyrst um atvikið á Facebook og hefur færsla hans vakið mikla athygli:

„Hann var sennilega á aldri við pabba minn og við hlið hans beið sjúskaður voffi eftir að förinni skildi haldið áfram að næstu tunnu.“

Hjalti lýsir manninum þannig að hann hafi verið í gatslitnum jakka,með rauða húfu og vinnulúnar hendur sem hefðu líklega unnið erfiðisvinnu allt hans líf.

„Ég hélt för minni áfram inn í búðina en einhvern veginn var ég búinn að missa alla lyst á heimagerðu ítölsku góðgæti.

Mér varð eiginlega bara óglatt. Ekki af því að mér hryllti við manninum, síður en svo. Mér varð óglatt yfir því að velferðarkerfið okkar sé virkilega svona.“

Svarið er mjög einfalt

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hjalti veltir upp þeirri spurningu af hverju fullorðinn maður þurfi, þegar 10 dagar eru liðnir af mánuðinum, að leita að dósum til að ná endum saman.

„Þetta gerði mig reiðann. Af hverju, í þessu litla landi okkar, er ekki hægt að hugsa betur um fólk en þetta.“

Hjalti kveðst sjá mest eftir því að hafa ekki boðið manninum með sér inn í Krónuna og fyllt matarkörfu fyrir hann.

„Ég borða það sem mér þykir gott. Hann borðar það sem krónurnar leyfa. Ég hugsa aftur og aftur: Af hverju er þetta svona? Svarið er mjög einfalt. VIÐ LEYFUM ÞESSU AÐ VERA SVONA! Við kjósum aftur og aftur helvítis fávitana sem láta þetta viðgangast og þiggja svo sjálfir hækkanir frá kjararáði.“

Hugsum um okkar minnsta bróður

Hjalta er mikið í mun um að þessu verði breytt og biður fólk sem er honum sammála um að deila greininni áfram.

„Förum að hugsa um okkar minnsta bróður og okkar elsta bróðir. Ég mun aldrei kvarta aftur yfir mínum fyrsta heims vandamálum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru