fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fókus

„Ógnvekjandi að sjá mynstrið“

Guðrún Bjarnadóttir miðlar reynslu sinni af heimilsisofbeldi á sviði Tjarnarbíós með leikhópnum RaTaTam í leikverkinu Suss!

Kristín Clausen
Föstudaginn 11. nóvember 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við lítum heimilisofbeldi í dag sömu augum og við litum alkóhólisma fyrir 60 árum.“ Þetta segir leikkonan Guðrún Bjarnadóttir sem hefur hrottalega reynslu af heimilisofbeldi. Guðrún sem opinberaði sögu sína árið 2014 hefur um langa hríð unnið mikla sjálfsvinnu. Í dag hefur hún þó alfarið sagt skilið við fyrra líf og lítur framtíðina björtum augum. Nýverið frumsýndi Guðrún, ásamt leikhópnum RaTaTam, leikverkið SUSS! sem byggir á reynslusögum gerenda, þolenda og aðstandenda þeirra af ofbeldi sem er alla jafna falið innan veggja heimilisins.

Gerandinn kúgar heimilisfólkið.
Ofbeldið er oft best varðveitta leyndarmál fjölskyldunnar Gerandinn kúgar heimilisfólkið.

Mynd: Shutterstock

Þetta er svo lúmskt

Í október 2014 birtist á vef Kvennablaðsins grein Guðrúnar sem bar yfirskriftina Minningar um ofbeldissamband. Þar fer hún ítarlega í saumana á sínu „fyrra lífi“. Lífinu með ofbeldismanninum sem rændi hana sjálfstraustinu, beitti hana grófu líkamlegu og andlegu ofbeldi og hótaði henni lífláti.

Í greininni lýsir Guðrún því, meðal annars, hvernig hún og ofbeldismaðurinn kynntust. „Ég hitti hann á einu af ölkelduhúsum bæjarins og heillaðist af því hversu öruggur hann virtist í eigin skinni og ákveðinn á sínu. Hann leit út fyrir að vera með það á hreinu hvað hann vildi og það heillaði óöruggu stelpuna í mér. Hann breytti oft gráti í hlátur og við náðum djúpri og einstakri tengingu.“

„Þetta er svo lúmskt. Þú kýlir ekkert manneskju á fyrsta „deiti“ og hún heldur áfram að vera með þér.“

Guðrún, sem er 35 ára, segir að lýsingin hér að ofan sé dæmigerð fyrir byrjun á ofbeldissambandi rétt eins og heilbrigðu ástarsambandi þar sem gagnkvæm virðing ræður ríkjum. „Þetta er svo lúmskt. Þú kýlir ekki manneskju á fyrsta „deiti“ og hún heldur áfram að vera með þér. Heimilisofbeldi lýsir sér allt öðruvísi. Byrjar með smá niðurbroti og svo vindur það upp á sig.“

Ofbeldismenn haldnir hugsanaskekkju

Að mati Guðrúnar er ofbeldi hrottalegt samfélagsmein. Hún líkir meðvirkninni og fordómunum sem þrífast, oft og tíðum, þegar ofbeldismál koma upp við það hvernig samfélagið leit á alkóhólisma fyrir 60 árum.

„Þeir sem beita ofbeldi eru í raun litnir sömu augum og alkar áður en alkóhólismi varð samfélagslega viðurkenndur sjúkdómur.“

„Það er erfitt fyrir gerendur að horfast í augu við sjálfa sig og viðurkenna að þeir beiti ofbeldi.“

Guðrún segir að við sem samfélag berum ábyrgð í þessum málaflokki og þurfum að geta tekist á við heimilisofbeldi á þann hátt að við gefum ofbeldismanneskjunni tækifæri til að viðurkenna að hún eigi við vanda að stríða og færi á að takast á við vandamálið. „Það er erfitt fyrir gerendur að horfast í augu við sjálfa sig og viðurkenna að þeir beiti ofbeldi, þegar fordæming og aðgerðarleysi samfélagsins í heild er jafn mikil. Með þessu er ég samt á engan hátt að draga úr ábyrgð þeirra sem beita ofbeldi, hún liggur að sjálfsögðu þeirra megin.“

Þá segir Guðrún að þeir sem beita ofbeldi séu oftar en ekki haldnir hugsanaskekkju en hún liggur mikið til í feðraveldinu. „Gerendurnir fela sig yfirleitt á bak við eitthvað. Til dæmis að þeir sjálfir hafi verið beittir ofbeldi í æsku eða jafnvel horft upp á það, komi frá heimili þar sem var mikil drykkja, hafi verið undir miklu álagi eða hreinlega muni ekki eftir ofbeldinu.“

Hún ítrekar að ekkert af framan nefndu sé haldbær ástæða fyrir að beita aðra manneskju ofbeldi af neinu tagi. Það sem skipti mestu máli er að gerandinn viðurkenni hugsanaskekkjuna, taki ábyrgð og vinni í sínum málum. „Við sem samfélag þurfum líka að leyfa þessum hópi að bæta sig. Ekki detta í að fordæma eða falla í meðvirknina sem er svo rík á meðal okkar Íslendinga.“

Hér er hún á sviði.
Guðrún segir vinnuna við Suss! hafa tekið mikið á Hér er hún á sviði.

Mynd: Tjarnarbíó

Óttaðist um líf sitt

Guðrún segir að samkvæmt þeim rannsóknum sem leikhópurinn fór yfir séu 20–25 prósent af ofbeldisfólki siðblindir einstaklingar. Það sé flókið að hjálpa þeim hópi en öðrum sé vel hægt að hjálpa við að leiðrétta hugsanaskekkjuna. Þá sérstaklega ef hjálpin berst snemma. Við byrjum á börnunum okkar.

Í grein Guðrúnar sem birtist í Kvennablaðinu útskýrir hún tilfinningar sínar þegar ofbeldið, í hennar eigin sambandi, var búið að yfirtaka líf hennar og hún var orðin of hrædd við kærasta sinn til að koma sér í burtu.

„Mér var farið að líða eins og ruslinu sem hann talaði um að henda. Ég velti stundum fyrir mér á þessum tíma hvort ekki væri best að ég gengi yfir stóru umferðargötuna og léti bílana taka mig í burt frá sársaukanum sem var innra með mér.“

Þegar spjallið berst að því hvað hindraði hana, á þessum tímapunkti, frá því að slíta sambandinu segir Guðrún að hún hreinlega viti það ekki nákvæmlega. Hræðslan við ofbeldismanninn í bland við lágt sjálfsmat, eftir áralanga niðurlægingu, gerði að verkum að Guðrún forðaði sér ekki úr sambandinu fyrr en óttinn við að hann myndi drepa hana var nánast orðinn að bláköldum veruleika.

Skiptu þér af

Við höldum áfram að ræða mögulegar ástæður þess að fórnarlömb ofbeldismanna sitja, oftar en ekki sem fastast, í lengri tíma og sumir alla ævi.

Fjölmargir bíða þess að sambandið lagist eða að ofbeldismaðurinn sjái að sér. Þá hafa einhverjir fjárhagslega áhyggjur, eru orðnir samdauna ofbeldinu eða hafa einfaldlega ekki andlega burði til að forða sér. Flestir láta þó stjórnast af ótta við ofbeldismanninn og þora einfaldlega ekki að setja sig upp á móti honum. Erlendar rannsóknir sýna fram á að konur sem þolendur eru í meiri lífshættu eftir að þær yfirgefa maka sinn heldur en í sambandinu.

Í öllum framangreindum tilfellum skiptir félagslegur stuðningur gríðarlega miklu máli. Guðrún bendir líka á mikilvægi þess að fólk skipti sér af þegar það grunar að manneskja sé beitt ofbeldi. Ofbeldi á ekki að vera falið innan veggja heimilisins

„Meðvirkni er hrikalega rík í fari okkar Íslendinga og þessi hugsunarháttur að það sem gerist innan veggja heimilisins megi haldast þar þótt það teljist brotlegt. Halldóra Rut sem er með mér í verkinu varð fyrir þeirri reynslu að heyra hávaða vegna heimilisofbeldis. Það fyrsta sem hún hugsaði var „þetta kemur mér ekki við.“ Hún var þó fljót að ranka við sér úr þessari hugsanavillu, stökk á fætur og bankaði á hurðina þar sem öskrin heyrðust og hringdi á lögregluna.“

Andlegt ofbeldi verra

Guðrún vill meina að af tvennu illu sé andlegt ofbeldi verra en líkamlegt. Það sé vel hægt að drepa manneskju andlega. „Öll spilaborgin fellur þegar þú hættir að hafa trú á sjálfri þér og finnst þú einskis virði. Það krefst líka gríðarlega mikillar staðfestu að leita sér aðstoðar eftir svona áfall. En það er nauðsynlegur hluti í bataferlinu sem og að tala við og kynnast fólki sem hefur gengið í gegnum sambærilega reynslu.“

Þegar hún sjálf komst loksins undan ofbeldismanninum, eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir, var Guðrún greind með áfallastreituröskun. Hún var hrædd um að sinn fyrrverandi myndi dúkka upp hvert sem hún fór og fannst hún sjaldnast örugg nema innan um ástvini sína.

Með tímanum náði Guðrún þó bata en að sama skapi viðurkennir hún að þessi reynsla sé mögulega ástæða þess að hún sé einhleyp enn þann dag í dag. „Ég hef oft hugsað út í það hvort ég hræðist að verða ástfangin aftur. En að sama skapi hefur sjálfsvinnan skilað mér miklu og hver veit hvað gerist seinna. Eins og staðan er í dag á ég hvorki mann né börn en ég á fimm systkini og góðan vinahóp.“

Margar birtingarmyndir

Guðrún tilheyrir leikhópnum RaTaTam en nýverið frumsýndi hópurinn, sem samanstendur af fimm leikurum, leikverkið SUSS! í Tjarnarbíói. Leikritið sýnir hinar ýmsu birtingarmyndir ofbeldis innan veggja heimilisins.

Auk Guðrúnar eru í hópnum Halldóra Rut Baldursdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Hildur Magnúsdóttir og Laufey Elíasdóttir. Charlotte Boving leikstýrir verkinu. Þórunn María Jónsdóttir sér um leikmynd og búninga. Tónlist er í höndum Helga Svavars Helgasonar. Arnar Ingvarsson og Kristinn Ágústsson sjá um ljósahönnun og tæknikeyrslu og listræna ráðgjöf veitti Heiðrik á Heygum.

Allir sem koma að verkinu eiga það sameiginlegt að hafa kynnst ofbeldi í einhverri mynd. Gríðarleg vinna liggur að baki sýningunni sem byggir á 50 viðtölum við þolendur, gerendur og aðstandendur.

„Við auglýstum eftir fólki til að taka viðtöl við á Facebook í janúar. Viðtökurnar voru framar öllum vonum og við tókum tugi viðtala við alls konar fólk úr öllum kimum samfélagsins.“

Auk Guðrúnar samanstendur hópurinn af Halldóru Rut Baldursdóttur, Hildi Magnúsdóttur, Laufeyju Elíasdóttur og Guðmundi Inga Þorvaldssyni.
Leikhópurinn RaTaTam Auk Guðrúnar samanstendur hópurinn af Halldóru Rut Baldursdóttur, Hildi Magnúsdóttur, Laufeyju Elíasdóttur og Guðmundi Inga Þorvaldssyni.

Tók mikið á andlegu hliðina

Í upphafi vinnunnar við sýninguna tóku þau nokkrar vikur í að lesa öll viðtölin en þau voru með yfir 200 klukkustundir af efni. Guðrún segir að það hafi tekið mikið á þau andlega að lesa allar þessar ofbeldissögur með það að markmiði að fiska út það sem átti að vera með í sýningunni.

„Maður áttar sig samt ekki á því fyrr en eftir á. Það er svo auðvelt að verða samdauna efninu. Á einum tímapunkti vorum við öll orðin andlega uppgefin. Charlotte, leikstjórinn okkar, sá þó hvað var í gangi og greip í taumana. Hún hélt svo vel utan um okkur og það er henni að þakka hvað við erum samheldinn og flottur hópur.“

„Það er ógnvekjandi að sjá mynstrið.“

Guðrún segir að langflestir sem sögðu meðlimum RaTaTam sögu sína hafi verið að segja sögu sína í fyrsta skipti. „Það sýnir kannski hversu algengt heimilisofbeldi er,“ segir Guðrún og bætir við að það hafi verið mjög sláandi að þrátt fyrir að sögurnar væru margar hverjar ólíkar væru þær í grunninn allar eins, ofbeldi er alltaf ofbeldi.

„Það er ógnvekjandi að sjá mynstrið. Hvernig samböndin byrja og hvernig gerandinn nær smátt og smátt að brjóta þolandann niður.“

Guðrún segir konur ekkert minni gerendur.
Leiksýningin hefur fengið góðar móttökur Guðrún segir konur ekkert minni gerendur.

Mynd: Tjarnarbíó

Konur ekkert minni gerendur

Líkt og áður segir byggir leikverkið á sönnum frásögnum Íslendinga. Þar kemur til dæmis í ljós í rannsóknum sem hópurinn lagðist yfir að kynin beita ofbeldi jafnt og að karlmenn eigi mun erfiðara en konur með að viðurkenna ofbeldið.

„Það er oft hugsunarháttur karlmanna að þeir láti ekki konu berja sig. Og ef hún gerir það þá ertu ekki maður með mönnum ef þú viðurkennir það. Því er það látið liggja í þagnargildi.“

Guðrún bendir með þessu á að konur séu ekkert minni gerendur en karlmenn þegar kemur að heimilisofbeldi, þó svo að birtingarmyndin sé oft önnur. „Það er sárt að horfa upp á kynsystur mínar beita ofbeldi þannig að barnsfeður þeirra fái ekki að umgangast börnin sín.“

Þó svo að leikverkið sé með alvarlegan undirtón er einnig að finna mikinn húmor í sýningunni. Guðrún segir það bráðnauðsynlegt að geta hlegið að erfiðri lífsreynslu eftir á. Eða að minnsta kosti að einhverjum hluta hennar.

Þakklát fyrir lífsreynsluna

Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er Guðrún þakklát fyrir lífsreynsluna sem hefur kennt henni að sjá lífið frá allt öðru sjónarhorni. Hún hefur í dag mun meiri trú á sjálfri sér og því sem hún tekur sér fyrir hendur en áður en hún kynntist ofbeldismanninum. Reynsluna tekur hún, til dæmis, með sér á svið í Tjarnarbíói og miðlar henni áfram með það að markmiði að uppræta heimilisofbeldi fyrir fullt og allt.

„Ofbeldi er gríðarlegt mein í íslensku samfélagi en ég hef fulla trú á að við getum í sameiningu gert betur. Bæði sem einstaklingar og sem samfélag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrafnkell Ívarsson hlutskarpastur í „Sterkasti maður Íslands“ – Sjáðu myndbandið

Hrafnkell Ívarsson hlutskarpastur í „Sterkasti maður Íslands“ – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Brad Pitt og Tom Cruise sameinast aftur eftir 24 ár

Brad Pitt og Tom Cruise sameinast aftur eftir 24 ár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Birtir sjaldséða mynd af Bruce Willis

Birtir sjaldséða mynd af Bruce Willis
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kom að pabba sínum látnum: „Átti lengi erfitt með að ná myndinni úr hausnum á mér”

Kom að pabba sínum látnum: „Átti lengi erfitt með að ná myndinni úr hausnum á mér”