fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Daníel ræður og gaf Margréti leyfi til að fara í viðtal: „Skylda mín að upplýsa hann um allt sem er að brjótast um í mér“

Vill útrýma staðalímyndum – „Það var eins og ég hefði kastað burtu hlekkjum“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 3. nóvember 2016 18:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þjónusta er eitt af tungumálum ástarinnar en hún virkar ekki nema hinn aðilinn sé meðvitaður um það. Annars verður þjónustunni tekið sem sjálfsögðum hlut. Í mínu tilfelli er allt sem ég geri svolítil ástarjátning. Það er ekkert gaman að brjóta saman þvott en það fær gildi ef ég er að gera það fyrir hann og hann veit það. Það tekur hversdagsleikann í burtu,“

segir Margrét Nilsdóttir. Hún er í viðtali við Akureyri vikudag en viðtalið hefur vakið mikla athygli. Fyrir nokkrum árum kom hún út úr skápnum sem BDSM-hneigð og situr hún í dag í stjórn félagsins BDSM á Íslandi. Vill hún vitundarvakningu um BDSM og að hneigðin verði viðurkennd sem eðlilegur partur af mannlegri fjölbreytni. Er hún búsett með manni sínum, Daníel Gunnarssyni á Akureyri sem gaf henni leyfi til að tjá sig við Akureyri vikublað.

Margrét upplifði sig frá barnæsku sem öðruvísi. Hún hafi verið „skrítinn“ krakki, einræn og fullorðinsleg og félagslegar reglur lágu ekki vel fyrir henni. Hún fékk frjálst uppeldi og leið aldrei skort. Þegar hún kom út úr skápnum hafði henni liðið illa lengi og skammast sín jafnvel fyrir hneigðir sínar. Það voru mikil straumhvörf að upplifa að þarna úti væru margir eins og hún. Skömmin fór þegar hún frétti af einhverju sem hét BDSM og uppgötvaði í kjölfarið að fleiri deildu sömu hvötum og hún.

„Það var eins og ég hefði kastað burtu hlekkjum. Frelsið og léttirinn var svo mikill, að geta talað um þetta og svo að kynnast fólki sem hafði sömu eða svipaðar kenndir. Fyrst horfðist maður í augu við þetta í sjálfum sér, svo deildi maður þessu með fáum útvöldum. Þriðja stigið var svo að koma út gagnvart öðru fólki.“

Hún segir BDSM ekki alltaf snúast um erótík heldur sé það ein af þeim ranghugmyndum sem ríkja í samfélaginu.

„Stærsta ástæðan fyrir því að koma fram er að breyta staðalímyndinni sem er algjört bull og byggist á grófu ofbeldi, kaldranaleika og ógeði. Það sést aldrei þessi hreini innileiki sem myndast getur þegar fólk brýtur niður múra sína og gefur sig algjörlega öðrum á vald; þetta flæði milli persóna sem báðir njóta. BDSM getur verið allt frá smá kryddi í kynlíf eða forleikur til að koma fólki í ákveðinn gír, yfir í að vera nokkurs konar samskiptamódel.“

Sambýlismaðurinn ræður

Ljósmynd/Akureyri Vikublað
Ljósmynd/Akureyri Vikublað

Margrét sem kveðst vera mikill femínisti býr með Daníel Gunnarssyni og kynntust þau í gegnum BDSM. Hann er drottnari. Hún undirgefin. Hún leyfir honum að stjórna lífi sínu að mörgu leyti. BDSM snýst ekki aðeins um erótík. Segir hún í grunninn snúist BDSM um samskipti á milli fólks. Vill hún breyta staðalímyndinni á að BDSM byggist einungis á grófu ofbeldi. Um sambýlismanninn segir Margrét:

„Hann markar leiðina og tekur ákvarðanir með hamingju okkar beggja að leiðarljósi. Það tekur í burtu þessa pressu sem ég á erfitt með að höndla; þessa pressu sem einkennir jafningjasamband og þau sífelldu átök og samningaviðræður sem eru hluti af venjulegum samböndum. Ég hefði ekki komið í þetta viðtal ef hann hefði bannað það.“

Aðspurð hvort það sé ekki flókið að vera undirgefin kona og femínisti segir Margrét það hafa gerst í upphafi og hún óskað sér að hún væri karlkyns. Þá upplifði hún það fyrst sem svik við konur en sættist við það þegar hún sá að þetta var val, og segir hún aðalatriðið í femínisma að konur hafi val. Hún velji það að vera undirgefin.

„Við ræðum saman og ef eitthvað skiptir mig verulega miklu máli útskýri ég það og athuga hvort hann sé tilbúinn að bakka [ …] Ég legg allt mitt líf í hans hendur og það er skylda mín að upplýsa hann um allt sem er að brjótast um í mér svo hann geti tekið góðar ákvarðanir. Hjá okkur er engin leynd. Ég get ekki sé neitt fallegra..“

Hér má lesa viðtalið í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Í gær

Nýir Netflix-þættir vekja athygli fyrir djarfar kynlífssenur

Nýir Netflix-þættir vekja athygli fyrir djarfar kynlífssenur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Secret Solstice gengur í endurnýjun lífdaga – Alþjóðleg sólmyrkvahátið 2026

Secret Solstice gengur í endurnýjun lífdaga – Alþjóðleg sólmyrkvahátið 2026
Fókus
Fyrir 5 dögum

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 6 dögum

Fór á veitingastað Jeremy Clarkson og var ekki hrifinn

Fór á veitingastað Jeremy Clarkson og var ekki hrifinn