Hljóp fjallamaraþon í Sviss til styrktar ungum frændum sínum
Þann 10. september tók Eva Lind Helgadóttir, 37 ára gömul húsmóðir, þátt í hinu erfiða Jungfrau-maraþoni sem háð er í svissnesku Ölpunum. Eva Lind á engan íþróttaferil að baki en ákvað að takast á við þessa erfiðu áskorun til stuðnings ungum frændum sínum tveimur, þeim Sindra Dan og Snævari Dan Vignissonum, en faðir þeirra, Vignir Grétar Stefánsson, varð bráðkvaddur langt fyrir aldur fram. Kom síðar á daginn að líftrygging hans var ekki í gildi og því erfið staða komin upp fyrir drengina og móður þeirra fyrir utan hina miklu sorg sem fylgir fráfalli Vignis.
Evu Lind tókst að ljúka hlaupinu og um síðustu helgi afhenti hún þeim Sindra Dan og Snævari Dan söfnunarféð, þriggja milljóna framtíðarsjóð.
Drengjunum verður úthlutað úr sjóðnum einu sinni á ári. Reikningnum verður haldið opnum áfram og getur fólk því lagt málefninu lið þótt þessum áfanga sé lokið. Til að mynda mun Júdódeild Ármanns halda þann 26. nóvember næstkomandi árlegt mót til minningar um Vigni Grétar og munu drengirnir njóta afrakstursins.
Þeim sem vilja styðja bræðurna ungu til framtíðar er bent á að leggja inn á reikning Júdódeildar Ármanns: 0515-14-411231 kt. 491283-1309