fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fókus

Ofsatrúarfólkið sér ekkert athugavert við að elta unglinga: „Ég frétti að krakkarnir í skólanum reyktu gras“

Angela Cummings og Simon Ott telja sig hafa verið í fullu rétti þegar þau trufluðu leikjadag MH-inga og Kvennaskólanema

Ritstjórn DV
Laugardaginn 8. október 2016 20:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég frétti að krakkarnir í skólanum reyktu gras. Þess vegna fórum við í skólann, við vildum ná til þeirra,“ segir Angela Cummings í samtali við DV og á þar við nemendur Menntaskólans í Hamrahlíð. Angela er konan ásamt Simon Ott sem gerði íslenskum unglingum lífið leitt og ofsóttu þá með texta úr Gamla testamenntinu að vopni þegar krakkarnir ætluðu að stunda leiki á Klambratúni. DV greindi frá málinu fyrir helgi.

Angela er frá Bandaríkjunum og Simon Ott frá Sviss eru stödd á Íslandi þessa dagana til að boða orð Guðs. Þau lásu grein þar sem stóð að 100% íslendinga undir 26 ára aldri væru trúleysingjar og höfðu áhyggjur af þeirri þróun. Þau lögðu því land undir fót og komu til íslands.

Angela hefur ferðast um allan heim og predikað á undanförnum árum, aðallega um Evrópu og Bandaríkin en á næsta ári stefnir hún á að ferðast um Asíu. Simon er aftur á móti að predika annars staðar en í heimalandi sínu í fyrsta sinn. Hann hefur áhuga á að ferðast um allt land og boða trúnna.

Angela og Simon komust í fréttir á Íslandi nýlega fyrir að áreita unglinga úr Menntaskólanum í Hamrahlíð og Kvennaskólanum, sem voru samankomin á Klambratúni til að fara í ýmsa leiki. Það endaði með því að unglingarnir hringdu á lögregluna til að láta fjarlægja þau. Áreitið hófst fyrst fyrir framan MH og elti parið unglingana niður á Klambratún sem fengu þar engan frið til að fara í leiki.

Hafa áhyggjur af trúleysi íslenskra ungmenna
Angela Cummings og Simon Otts Hafa áhyggjur af trúleysi íslenskra ungmenna

„Ég frétti að krakkarnir í skólanum reyktu gras,“ segir Angela og á þar við nemendur Menntaskólans í Hamrahlíð. „Þess vegna fórum við í skólann, við vildum ná til þeirra.“ En Angela og Simon eltu krakkana á Klambratún. Angela vitnar í orðskviðina í Biblíunni þar sem stendur að til að ná til sem flestra eigi að predika þar sem fjöldinn er. Þess vegna predikar hún aðallega á götum úti frekar en í kirkjum.

„Ég veit að krakkarnir voru með planaða einhverja leiki,“ segir Angela „en hvað svo sem þau voru með planað getur ekki verið mikilvægara en orð guðs,“ bætir hún við aðspurð að því hvort ekki hefði verið meira viðeigandi að auglýsa kynningafund í skólunum frekar en að skemma fyrir þeim leikjadaginn.

„Ég er viss um að við höfum náð til einhverra af þessum krökkum,“ segir Angela. Simon segir að þrátt fyrir að stór hluti Íslendinga séu trúleysingjar hafi hann fundið fyrir jákvæðum viðbrögðum við trúboði þeirra Angelu.

„Þú getur horft á homma og séð að hann dansar um eins og stelpa, þetta er djöfull.“

„Við erum ástrík,“ segir Angela. „Við dæmum ekki fólk, en guð mun dæma okkur öll þess vegna er mikilvægt að falla ekki fyrir freistingum.“

Angela og Simon hafa áhyggjur af því að trúleysi íslenskra unglinga geri þau berskjölduð gagnvart freistingum eins og áfengisdrykkju og samkynhneigð sem þau segja að sé ófyrirgefanleg synd. Angela og Simon vilja bjarga þessum unglingum þó það kosti að vera ágeng eða að lögreglan handtaki þau.

„Guð vill að við þrýstum á þessa krakka, að þau viti að okkur er alvara,“ segir Simon um atvikið á Klambratúni.

Angela var fíkill áður er hún fann köllun sína og endufæddist sem kristin kona. Simon hefur svipaða sögu að segja, hann átti við ýmsar fíknir að stríða til dæmis klámfíkn og kaupfíkn en fann lausn í trúnni 17 ára gamall. Bæði tilheyra þau svokölluðum „born again christians“ sem mætti útleggjast á íslensku sem endurfæddir kristnir, en það þýðir að þau taka Biblíunni bókstaflega.

Angela telur að með því að trúa á Guð muni hann frelsa fólk frá fíkn og freistingum. En samkynhneigð er í hennar huga ekkert annað en freisting sem guð hefur andstyggð á. „Þú getur horft á homma og séð að hann dansar um eins og stelpa, þetta er djöfull.“

Á Klambratúni voru það einmitt niðurlægjandi athugasemdir um samkynhneigða sem reitti unglingana helst til reiði. Í samtali við blaðamann sögðu Angela og Simon ekki sjá neitt athugavert við þessi ummæli.

Á Nútímanum kemur fram að Simon ætli að dvelja áfram á Íslandi á meðan Angela heldur aftur til Bandaríkjanna. Hún telur það nánast ómögulegt að bjarga Íslendingum frá glötum. Þá var Simoni vísað út af hótelinu. Hann hafði komið auga á stúlku sem honum fannst vera í alltof stuttu pylsi. Sagði hann við blaðamann að hún liti út eins og hóra og ákvað því að tala við hana. Honum var vísað út í kjölfarið.

Reyndu mörgum sinnum að stöðva fólkið. Það gekk ekki
Reyndu mörgum sinnum að stöðva fólkið. Það gekk ekki

Angela leggur áherslu á það að guð hafi fórnað syni sínum fyrir okkur fyrir 2000 árum síðan og það sýni hversu heitt hann elskar okkur, því sé mikilvægt að við fylgjum orðum hans. Simon tekur við:

„Vissulega er Biblían 2000 ára gömul og sumt í henni á ekki við í dag, en það þýðir ekki að grunngildin séu ekki þau sömu. Ef við fylgjum ekki reglum, ef við leyfum samkynhneigð eða nauðgun eða morð þá hnignar samfélagið og það er ekki gott fyrir okkur. Þess vegna er það af kærleika sem Guð dæmir sumt fólk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Höfnuðu Southgate
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór á veitingastað Jeremy Clarkson og var ekki hrifinn

Fór á veitingastað Jeremy Clarkson og var ekki hrifinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru