fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

Olga Sonja strippaði til að borga niður lánið hjá Landsbankanum

Sér ekki eftir neinu – Heimurinn ekki svarthvítur – setur upp leiksýningu

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Laugardaginn 6. ágúst 2016 10:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Olga Sonja starfaði sem nektardansari í Þýskalandi. Það gerði hún eftir að hafa komið sér í skuld við Landsbankann. Hún vildi greiða lánið upp á eigin spýtur. Nú hefur hún skrifað leikverk byggt á reynslu sinni sem strippari. Leikverkið verður verður opnunarverk sviðslistahátíðarinnar Everybody‘s Spectacular í lok ágúst. DV fjallaði um verkið í gær. Olga Sonja tjáirt sig um reynsluna af því að fækka fötum við Fréttablaðið.

Olga Sonja, sem er dansari og útskrifaður leikari segir að hún hafi sótt um á nokkrum stöðum og var boðuð í atvinnuviðtal hjá nektarstað í Þýskalandi. Í kjölfarið var henni boðin vinna. Hún fækkaði fötum á topless-bar en þar fara konurnar úr öllu nema nærbuxum. Þar var ein stúlka að safna fyrir brúðkaupi. Önnur fyrir háskólanámi. Olga Sonja safnaði fyrir Landsbankann eins og áður segir eftir að hafa komið sér í skuldir.

„Þá datt mér í hug að prófa að sækja um vinnu á strippstað í Berlín og sjá hvort þetta væri svona rosalega vel launað eins og fólk talar um og sjá hvort ég gæti greitt þessa skuld með því að vinna fyrir mér sem strippari.“

Olga hafði aldrei komið inn á strippstað og segir reynsluna hafa haft mikil áhrif á sig. Hún vann á staðnum í þrjá mánuði og hafði þá greitt upp skuldina við Landsbankann. Aðspurð hvort hún hafi verið fegin að hætta svarar hún:

„Þetta var ekkert brjálæðislega íþyngjandi á meðan á þessu stóð. Ég var einmitt að hugsa í morgun um hvað strippstaður væri í raun og veru. Mér fannst ótrúlega áhugavert þegar ég var að vinna þarna hvernig þetta var smá eins og míkróútgáfa af okkar heimi. Það súmmeraðist dálítið upp hvernig heimurinn virkar einhvern veginn. Peningaskipti, stigveldi og allir að reyna að fá það sem þeir vilja. Það er kannski meira falið í okkar samfélagi. Þarna verður það einhvern veginn svo strípað niður. Einhver lítil útgáfa af okkar heimi.“

Þá virðist reynslan hafa dregið úr fordómum hennar í garð nektarstaða. Segist hún hafa uppgötvað að heimurinn væri ekki svarthvítur. En líkt og oft hefur komið fram í fjölmiðlum grassgerar vændi og mansal á fjölmörgum nektarstöðum. En Olga minnist ekki á neitt slíkt.

Vorkenndi karlmönnum

Hópurinn sem setur upp verkið
Hópurinn sem setur upp verkið

Þá segir Olga frá því að hún hafi verið byrjuð að vorkenna karlmönnum. Það hafi gerst í nokkur skipti. Henni fór að líða eins og hún væri að notfæra sér þá, reyna græða á þeim pening.

„Mér fannst við stelpurnar oft valdefldar. Við vorum saman í liði og allar sameinaðar á að græða pening. Allar saman í því að það sem við værum komnar til þess að gera væri að ná eins miklum pening og við gætum út úr þessum köllum.“

Olga hefur nú ákveðið að nýta reynslu sína í sýningu sem sett verður upp í Tjarnarbíó í lok mánaðarins eða þan 24. ágúst. Aðspurð hvort hún sjá eftir að hafa gerst strippari segir hún svo ekki vera. Hún hafi farið í nokkra hringi.

„Þetta er svo flókið og ólík hugmyndafræði sem togast á í manni varðandi þetta. Hugmyndin um frelsi einstaklingsins til þess að gera það sem hann vill og þar af leiðandi gera það sem hann vill við eigin líkama, hugmyndir um siðferði og femínískar pælingar eins og hvort og hvernig þetta hafi áhrif á aðrar konur í heiminum. Þetta er stórt og flókið og ég enda aldrei á einhverju einu sem mér finnst segja mér hvernig þetta á að vera.“

Hér má lesa viðtalið í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 4 dögum

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga