Það er augljóst að geitungarnir sem búa við heimili Þorsteins Guðmundssonar, uppistandara og leikara, eru ekki að huga neitt sérstaklega að mataræðinu.
Þeir fúlsa nefnilega við heimatilbúnu geitungagildrunni hans. Geitungagildrur geta komið til bjargar, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar fólk vill njóta veðursins án þess að þurfa að eiga við þessa spjátrunga. Hugmyndin er að klófesta hvimleiða geitunga í flugnagildru með dísætum vökva, en eftir að þeir hafa matast komast þeir svo ekki út.
Eitthvað klikkaði þetta þó hjá Þorsteini. „Útbjó flugnagildru með sykurlausu sýrópi sem geitungarnir líta ekki við. Auðsjáanlega ekki í low-carb (lágkolvetna, innsk. blm.) mataræðinu,“ tísti Þorsteinn um þessa vandlátu geitunga.