fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Sjampóbrúsa með ylvolgu þvagi Sveins Andra stolið í Laugum

Hefndi sín rækilega á bíræfnum sjampóþjófi

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 2. ágúst 2016 22:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Einhver fingralangur meistari fékk góða næringu í hárið í kvöld.“ Þetta segir lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson sem hefndi sín alrækilega á bíræfnum sjampó-þjófi sem stal sjampóbrúsanum hans úr handklæðarekkanum í baðstofunni í Word Class í Laugum fyrr í kvöld.

Það sem þjófurinn veit þó ekki er að brúsinn innihélt ekki rándýrt sjampó, líkt og umbúðirnar gáfu til kynna, heldur ilvolgt þvag lögmannsins.

Fékk nóg af fingralöngum baðstofugestum

Sveinn Andri ákvað að taka til sinna ráða eftir að hafa lent í því alloft að sjampóbrúsanum var stolið úr handklæðarekkanum við sturturnar í Laugum.

Í samtali við DV segir Sveinn Andri að hann hafi verið búinn að gefast upp á að geyma sjampóið í handklæðinu. „Ég er búinn að venja mig á að geyma þetta í töskunni sem er tómt vesen,“ segir hann og bætir við.

„Þetta er rándýrt sjampó sem maður er með. Það var örugglega búið að stela frá mér sex eða sjö brúsum áður en ég gafst upp“.

Glæpur og refsing

Sveinn Andri segir að það sé langt síðan honum datt í hug að hefna sín með þessum hætti en ákvað þó að framkvæma ekki verknaðinn fyrr en í dag þegar honum tókst loksins að klára úr brúsanum án þess að honum hefði verið stolið.

Sjampóþjófurinn á líklega eftir að hugsa sig tvisvar um áður en hann lætur aftur til skarar skríða.
Mynd: Skjáskot af Facebook síðu Sveins Andra Sjampóþjófurinn á líklega eftir að hugsa sig tvisvar um áður en hann lætur aftur til skarar skríða.

„Af því tilefni skolaði ég hann vandlega og fyllti hann síðan af ylvolgu og vellyktandi hlandi mínu og skildi eftir í búningsklefanum.“

Sveinn Andri bætir við að þetta eigi þó að vera ágætis hárnæring. „Hver veit nema þetta eigi eftir að slá í gegn og verði góð söluvara. Framleiðslukostnaðurinn verður að minnsta kosti ekki mikill.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár