fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

„Endorfín er ótrúlegt efni“

Atli Fannar æfir mikið – Elskar kex og snakk

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. ágúst 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kannski er Atli Fannar Bjarkason einhvers konar undrabarn í fjölmiðlum. Hann byrjaði ungur að skrifa fréttir, fyrir hálfgerða rælni, því hann fékk ekki vinnu sem námsráðgjafi í grunnskóla, ómenntaður pilturinn. Í dag stýrir hann Nútímanum sem er algjört spútnikfyrirbæri í íslenskum fjölmiðlaheimi. Ragnheiður Eiríksdóttir hitti Atla Fannar og ræddi við hann um velgengnina og hvernig það er að lifa með höfuðið fullt af hugmyndum.

Í toppformi

Atli er greinilega í mjög góðu líkamlegu formi, og ég spyr hann næst hvort þessi lífsþorsti knýi hann áfram í heilbrigðum lífsháttum.

„Ég æfi 5–6 sinnum í viku. Annars vegar víkingaþrek í Mjölni, og hins vegar er ég í körfubolta. Ég er ekkert að fela það að ég vil æfa til að halda mér ungum sem lengst og það hefur keðjuverkandi áhrif á líf mitt. Mér líður vel og ég get borðað það sem ég vil borða. Ég elska pítsu og mundi borða pítsu í öll mál ef samfélagið samþykkti það. Ég borða líka mikið sælgæti og elska kex og snakk. Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég æfi ég svona mikið. En svo er það auðvitað eina vitið. Endorfín er ótrúlegt efni.

Ég var metnaðarfullur djammari áður fyrr. Svo fékk ég ógeð og skipti úr magni yfir í gæði. Mér finnst gott að drekka mjög góðan bjór, en drekk síður til að verða fullur.“

Atli á kærustu sem heitir Lilja og er Vesturbæingur. Þau eru búin að vera saman í þrjú ár og og búa í Vesturbænum. Ég spyr hvort parið sé farið að huga að barneignum. „Já já, það er allt opið og ég er til í allt. Ég er mikill barnakarl. Ég hef svo barnslegt andlit og mig grunar að börn líti á mig sem jafningja sem getur gert allt sem þau geta ekki gert. Get reimað á mig skóna, er með tekjur, ræð í hverju ég er og fæ mér stundum kex í kvöldmat. Þau hljóta að skynja þetta og sýna velþóknun sína með því að kætast í kringum mig.“

Atli elskar lífið og langar að geta haldið endalaust áfram.
Hræddur við dauðann Atli elskar lífið og langar að geta haldið endalaust áfram.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Kemst bráðum í frí

Uppteknasti maður á Íslandi er nánast alltaf vinnandi og hefur ekki tíma fyrir mikið annað en kærustuna og líkamsrækt.

„Annríkið bitnar aðallega á kærustunni og hún er örugglega Íslandsmeistari í umburðarlyndi. Ég verð alltaf að taka tölvuna með hvert sem við förum því ég þarf stöðugt að sinna Nútímanum. Ég hef mikinn áhuga á körfubolta og spila í utandeildarliði sem heitir Vonda liðið. Það þarf alltaf að vera eitt vont lið eins og í bíómyndum. Við erum í svörtum búningum með hauskúpum og erum mjög góðir. Höfum unnið okkar riðil í utandeildinni tvö ár í röð en svo dottið út í úrslitakeppninni á grátlegan hátt.“

Atli segist þó ekki búa yfir sérstaklega miklu keppnisskapi. „Ég er með leiðinlega mikið jafnaðargeð. Lilja hefur til dæmis kvartað yfir því að ég hafi varla reiðst eða grátið síðan við kynntumst. Hún hefur reyndar aldrei hitt vinnu-Atla – hann er grjótharður og ég vil ekki kynna hann fyrir henni. Hún fær frekar að sjá mínar ljúfustu hliðar. Í körfuboltanum er ég aðeins nær vinnu-Atla – tudda og ríf kjaft. Ég held að þessi mikla hreyfing og útrás sem ég fæ stuðli að jafnaðargeðinu.“

Ráðningu fyrsta starfsmannsins á Nútímann er við að ljúka, en með henni sér Atli fram á að geta kannski tekið sér frídaga af og til. Í lok sumars ætlar hann að hætta sér upp í flugvél með kærustunni. „Ég ætla að reyna að skilja tölvuna eftir heima. Það er ekki víst að það takist en ég er að vinna í því!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 1 viku

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Una slær í gegn á TikTok – Hermir eftir 6 íslenskum söngkonum í einu lagi

Una slær í gegn á TikTok – Hermir eftir 6 íslenskum söngkonum í einu lagi