fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Kelly Osbourne lætur nettröllin sem hæðast að útliti hennar heyra það – „Sparka í mig liggjandi“

Fókus
Mánudaginn 2. mars 2026 13:30

Kelly Osbourne og móðir hennar, Sharon, á BRIT-verðlaunahátíðinni þann 28. febrúar/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa velt fyrir sér heilsu raunveruleikastjörnunnar Kelly Osbourne eftir að hún mætti á BRIT-verðlaunahátíðina í Manchester til að taka við heiðursverðlaunum fyrir hönd föður síns, rokkarans Ozzy Osbourne sem lést í júlí á síðasta ári. Margir netverjar hæddust af útliti hennar á meðan aðrir viðruðu áhyggjur af heilsufari hennar. Umræðan fór ekki fram hjá raunveruleikastjörnunni sem birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún minnti á að aðgát skyldi höfð í nærveru sálar.

„Það felst alveg sérstök grimmd í því að særa einhvern sem er augljóslega að ganga í gegnum erfiðleika,“ segir Kelly í yfirlýsingu sem hún birti á Instagram í gær. „Að sparka í mig liggjandi, að efast um sársaukann minn, að dreifa erfiðleikum mínum sem einhverju slúðri og snúa við mér bakinu þegar ég þarf mest á stuðningi og kærleika að halda. Ekkert af þessu er merki um styrk; þetta afhjúpar bara algjöran skort á samkennd og heilindum.“

Kelly minnir á að hún sé að ganga í gegnum erfiðasta tíma lífs síns og ætti því ekki að þurfa að verja sig á opinberum vettvangi.

„Ég mun þó ekki sitja hjá og leyfa að ég sé afmennskuð með þessum hætti.“

Fimm dögum áður hafði Kelly svarað niðrandi athugasemd um útlit hennar á netinu, en þar hafði einhver skrifað: „Hún er eins og lík… hún er of grönn og brothætt… svo virðist sem að hún muni hitta pabba sinn bráðum.“

Kelly deildi þessari athugasemd á Instagram og skrifaði: „Ég bókstaflega get ekki trúað því hversu ógeðslegar sumar mannverur eru í raun og veru. Enginn á skilið svona níð. Þetta, eins og annað, mun ganga yfir – en guð minn góður.“

Raunveruleikastjarnan hafði svo lýst því í samtali við breska fjölmiðlamanninn Piers Morgan í desember að það væri erfitt að fylgjast með umræðunni um þyngd hennar enda virtust allir þátttakendur hennar hafa gleymt því að hún væri að syrgja pabba sinn.

„Til fólksins sem finnst það fyndið og andstyggilegt þegar það skrifar athugasemdir á borð við: „Ertu veik?“, eða „Hættu á Ozepmpic, þú lítur illa út“. Pabbi minn var að deyja og ég er að gera mitt besta, það eina sem ég hef til að lifa fyrir í dag er fjölskyldan mín.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu