fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fókus

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás

Fókus
Föstudaginn 13. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Brittany Smith, íbúi í bænum Manchester í Tennessee í Bandaríkjunum, fékk meldingu um að einhver væri við útidyrnar á heimili hennar vissi hún sem var að Starbucks-sendingin sem hún hafði pantað sér væri komin.

Brittany ákvað í þetta skiptið að nýta sér þjónustu heimsendingarfyrirtækisins DoorDash.

Það sem vakti strax athygli hennar var þegar hún sá hver það var sem kom með matinn; eldri maður sem virtist eiga í töluverðum erfiðleikum með að ganga. Velti hún fyrir sér hvers vegna maðurinn væri ekki bara sestur í helgan stein, enda augljóslega kominn af léttasta skeiði.

Brittany ákvað að birta myndbandið úr Ring-myndavélinni á samfélagsmiðlum. „Hjálpið mér að finna þennan dásamlega mann! Af hverju þarf hann að vinna fyrir DoorDash?“

Smith komst fljótlega að því að sendillinn, sem aðeins hefur verið nafngreindur sem Richard, hafi verið farinn á eftirlaun fyrir nokkru síðan en neyðst til að fara aftur út á vinnumarkaðinn eftir að eiginkona hans missti vinnuna.

Brittany ákvað að hrinda af stað söfnun á vefnum GoFundMe svo hjónin gætu fengið aðstoð við að greiða reikninga og lyfjakostnað hjónanna. Eftir samtal við Richard komst hún að því að hann væri ekki á vinnumarkaðnum „af því að hann vilji það“ og hvatti hún fólk til að leggja sitt af mörkum svo hann gæti sest aftur í helgan stein.

Óhætt er að segja að söfnunin hafi gengið vel og hafa nú þegar safnast rúmlega 530 þúsund Bandaríkjadalir, tæpar 67 milljónir króna á núverandi gengi.

Smith segist vera orðlaus yfir viðbrögðunum og ákaflega þakklát. Ætla má að Richard sé það einnig og þurfi ekki að fara í fleiri sendingar fyrir DoorDash.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fallegasta stúlka í heimi er trúlofuð

Fallegasta stúlka í heimi er trúlofuð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hólmfríður áttaði sig á þessu á fyrirlestri með eiginmanninum – „Hann bara talaði inn í hjartað á mér“

Hólmfríður áttaði sig á þessu á fyrirlestri með eiginmanninum – „Hann bara talaði inn í hjartað á mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 1 viku

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin