fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fókus

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“

Fókus
Föstudaginn 13. mars 2026 16:30

epa08076150 US actor Harrison Ford arrives at the premiere of Star Wars: The Rise of Skywalker at the El Capitan Theater in Hollywood, California, USA, 16 December 2019. EPA-EFE/CHRISTIAN MONTERROSA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harrison Ford svaraði játandi þegar spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel spurði hvort leikarinn hefði nokkurn tímann stundað kynlíf á meðan hann hlustaði á tónlist úr sínum eigin kvikmyndum.

Spurningin kom eftir að Kimmel spilaði klippu úr sjónvarpsþáttunum Shrinking, þar sem Harrison lék sálfræðing með Parkinsons-sjúkdóminn, en í klippunni má heyra persónuna humma þekkt stef úr kvikmyndunum um Indiana Jones, þar sem Harrison lék einmitt titilhlutverkið.

„Var þetta eitthvað sem kom samleikurum þínum á óvart?“ spurði Kimmel og leikarinn sagðist ekki muna það nákvæmlega.

„Þú manst þá kannski þetta,“ hélt Kimmel áfram og spurði svo: „Hefðirðu einhvern tímann notað ásta við tónlist úr einhverju af kvikmyndunum sem þú hefur leikið í? Kannski úr Witness?“

„Að sjálfsögðu hef ég gert það,“ sagði leikarinn eftir nokkuð langa þögn. Hann fór ekki frekar í saumana á þessu svo aðdáendur hans geta bara giskað hvaða tónlist hefur orðið fyrir valinu. Mögulega ódauðlega stefið úr Indiana Jones, mögulega ódauðlega stefið úr Stjörnustríðsmyndunum og mögulega eitthvað allt annað. Harrison hefur enda leikið í mörgum frægum kvikmyndum svo hann ætti að eiga heilu skápana af plötum sem hann getur notið ástar við.

Harrison er giftur leikkonunni Calistu Flockhart. Það var hans þriðja eiginkona en fyrst var hann giftur Mary Marquard og á með henni tvö börn, svo var það Melissa Mathison sem hann á líka tvö börn með og loks Calista en Harrison gekk syni hennar í föðurstað og ættleiddi eftir að leikararnir gengu í hjónaband árið 2010.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Í gær

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“
Fókus
Fyrir 1 viku

Afrika Bambaataa er látinn

Afrika Bambaataa er látinn
Fókus
Fyrir 1 viku

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn