fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Réttað yfir svarta sauði norsku konungsfjölskyldunnar – Móðir hans er verðandi drottning en hver er pabbi hans?

Fókus
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöld hófust í dag í einu umtalaðasta máli Norðurlandanna um þessar mundir, en þar svarar sonur krónprinsessunnar til saka fyrir 38 ákæruliði. Marius Borg Høiby er sonur Mette-Marit krónprinsessu og stjúpsonur Hákonar krónprins.

Foreldarnir voru aldrei par

Marius fæddist þann 13. janúar árið 1997, fjórum árum áður en Mette-Marit gekk að eiga Hákon. Hann fagnaði því 29 ára afmæli sínu nú í janúar. Marius var aðeins tvítugur þegar hann komst fyrst í kast við lögin þegar hann hlaut sekt fyrir vörslu fíkniefna á tónlistarhátíð. Allt frá því hefur Marius reglulega verið milli tannanna á fólki fyrir skemmtanalífið sem hann þykir ekki hafa nálgast með konunglegum hætti. Það var svo í ágúst árið 2024 sem hann var fyrst handtekinn vegna gruns um ofbeldisbrot en nú svarar hann til saka í 38 ákæruliðum, meðal annars fyrir fjórar nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líflátshótanir og fleira.

Málið hefur aftur beint sviðsljósinu að föður Mariusar, Mortin Borg, sem er glæpamaður, en margir telja að Marius sé að fylgja í fótspor föður síns. Morten og Mette-Marit kynntust í Osló í félagsskap sem þótti vægast sagt vafasamur, en Mortin þótti þá vel tengdur undirheimum og hafði þegar verið dæmdur fyrir að vörslu og sölu fíkniefna.

Foreldrar Mariusar voru aldrei par. Þau kynntust í gegnum þáverandi sambýlismann Mette-Marit, John Ognby, sem var 15 árum eldri en krónprinsessan og dæmdur glæpamaður. Ognby og Mette-Marit bjuggu saman í um tvö ár í félagslegu húsnæði í Lillestrøm en sambandi þeirra lauk um það leyti sem Marius var getinn, eftir að Ognby elti Mette-Marit á almannafæri vopnaður hníf. Morten var ekki viðstaddur þegar Marius kom í heiminn þar sem hann sat þá í fangelsi fyrir ofbeldisbrot.

Faðir prinsessunnar var líka glæpamaður

Faðir Mette-Marit var Sven Olaf Bjarte Høiby. Þegar hann var ungur starfaði hann við blaðamennsku en svo náði áfengið yfirhöndinni og hann dró fram lífið á félagslegum bótum. Hann var í tvígang dæmdur fyrir ofbeldisbrot. Eftir að Mette-Marit varð prinsessa varð Sven Olaf þekktur fyrir tengsl sín við gulu pressuna, þá einkum Se og Hør, og allt ætlaði svo um koll að keyra þegar hann giftist fatafellu árið 2005. Sven Olaf var sakaður um að gera dóttur sína að féþúfu en hann hafði reglulega samband við fjölmiðla til að selja þeim sögur af dóttur sinni og barnabarni.

Óvinsæl verðandi drottning

Hákon krónprins hitti Mette-Marit fyrst á tónlistarhátíð árið 1996. Þau hittust aftur þremur árum síðar á sömu hátíð en þá var Mette-Marit einstæð móðir. Noregur fór á hliðina árið 2000 þegar trúlofun þeirra var opinberuð. Mette-Marit var uppnefnd partýprinsessan og Norðmenn náðu ekki upp í nef sér að krónprinsinn ætlaði að ganga að eiga ómenntaða konu úr verkamannastétt sem væri þar að auki einstæð móðir með tengsl við undirheimamenn. Föðursystir Hákonar, Ragnhild prinsessa, sagðist vona að hún myndi ekki lifa daginn sem Mette-Marit yrði drottning.

Prinsessunni hefur ekki gengið vel að vinna sér inn hylli Norðmanna. Samkvæmt skoðanakönnunum er hún frekar óvinsæl. Árið 2012 var hún sökuð um að taka þátt í mansali fyrir að hafa hjálpað norsku pari að finna staðgöngumóður í Indlandi, þrátt fyrir að staðgöngumæðrun væri ólögleg í Noregi. Eins hefur prinsessan verið gagnrýnd fyrir ást hennar á lúxusvarningi og stórtæka peningaeyðslu. Árið 2024 sögðust aðeins 27 prósent Norðmanna vilja sjá hana sem drottningu, en ekki þykir líklegt að vinsældir hennar hafi aukist síðan þá í ljósi þeirra þungu saka sem sonur hennar er borinn.

Marius er sakaður um nauðganir og ofbeldi gegn tveimur fyrrverandi kærustum. Fjölmiðlar halda því fram að Marius hafi fengið forréttindameðferð frá lögreglunni vegna þess að stjúpfaðir hans er verðandi konungur. Eins hefur Mette-Marit verið sökuð um að vara son sinn við yfirvofandi handtöku og fyrir að hafa átt við sönnunargögn og vitni.

Til að bæta gráu ofan á svart er Mette-Marit áberandi í Epstein-skjölunum alræmdu, en þau voru vinir á árunum 2011-2014. Þá hafði Epstein þegar verið sakaður um kynferðisbrot gegn börnum.

Sjá einnig: Maðurinn sem kynnti Mette-Marit og Epstein – „Hún er svolítið klikkuð“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short