fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Ísraelar velja lag fyrir Eurovision – Strax á meðal þeirra sigurstranglegustu

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 13:30

Noam Bettan mun flytja lagið. Mynd/Eurovisionworld

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelar kynna lagið sem mun keppa í Eurovision söngvakeppninni á fimmtudag. Þrátt fyrir að enginn hafi heyrt lagið þá er það talið á meðal þeirra sigurstranglegustu samkvæmt veðbönkum.

Samkvæmt ísraelska ríkissjónvarpinu KAN þá mun söngvarinn Noam Bettan flytja lagið „Michelle“. Lagið var ekki valið í forkeppni heldur af nefnd sem sigtaði það úr 200 innsendum lögum. Hinn 27 ára poppsöngvari var látinn syngja 4 þeirra fyrir nefndina sem valdi svo „Michelle“.

Þrátt fyrir að lagið hafi ekki enn þá verið kynnt opinberlega þá er það þegar á meðal sigurstranglegustu laganna í keppninni, sem verður haldin þann 12. til 16. maí næstkomandi í Vínarborg. Veðbankar eru nú með Ísrael í fimmta sæti á eftir Finnlandi, Grikklandi, Svíþjóð og Danmörku.

Eins og flestir muna þá hefur þátttaka Ísraels vakið miklar deilur í Eurovision heiminum. Eftir mikla rekistefnu í haust var ákveðið að Ísrael fengi að taka þátt þrátt fyrir hernað þess á Gaza ströndinni. Ísland sniðgengur keppnina vegna þátttöku Ísrael ásamt Hollandi, Spáni, Írlandi og Slóveníu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís