fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Fjársöfnun fyrir fjölskyldu leikarans harðlega gagnrýnd – Keyptu búgarð fyrir hálfan milljarð skömmu fyrir andlátið

Fókus
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn James Van Der Beek er látinn eftir erfiða baráttu við ristilkrabbamein. Hann lést þann 11. febrúar og í framhaldinu var hafin fjársöfnun fyrir fjölskyldu hans sem var sögð í erfiðri stöðu vegna reikninga fyrir krabbameinsmeðferðina, en slíkar meðferðir geta komið fólki í gjaldþrot í Bandaríkjunum ef það hefur ekki nægilega góðar sjúkratryggingar.

Á skömmum tíma tókst að safna rúmum 300 milljónum fyrir eiginkonu leikarans og börnin þeirra sex, en þá fór að bera á gagnrýni. Erlendir miðlar greindu frá því að fáeinum mánuðum fyrir andlátið hefði leikarinn keypt rándýran búgarð fyrir fjölskylduna sem kostaði rúman hálfan milljarð.

Mörgum var í framhaldinu misboðið. Á Reddit fór af stað umræða þar sem fólk var hvatt til að láta af þeirri hegðun að dýrka frægt fólk. Það sé galið að fólk sem á erfitt með að ná endum saman sé að leggja inn á fjölskyldu þekkts leikara sem var greinilega stórefnaður.

„Svo fólk var að leggja inn á milljarðamæring bara svo ekkjan gæti viðhaldið lúxuslífstíl sínum? Leyfum öðrum milljarðamæringum að hjálpa henni þá.“

„GoFundMe ætti að endurgreiða framlögin. Þetta er skandall.“

„Látið fjölskylduna selja búgarðinn og endurgreiða styrkina til fólksins sem greiddi þá. Mér líkaði við leikarann og það er leitt að hann sé dáinn en FOKK það að stela peningum af fólki bara út af frægð hans. Seljið draslið ykkar eins og við hin þurfum að gera. Þetta er ótrúlegt.“

„Búgarður metinn á hálfan milljarð en þau ákveða að grátbiðja venjulega Bandaríkjamenn um peningana sem þeir unnu sér inn fyrir með hörkuvinnu.“

Gagnrýnin varð svo hörð að aðstandendur leikarans hafa nú brugðist við.

Miðillinn TMZ greindi frá því um helgina að vinir leikarans hefðu hjálpað honum með útborgun þegar hann keypti búgarðinn sem fjölskyldan hafði áður haft á leigu. Fjölskylduna langaði að hætta að greiða leiguna og borga frekar afborganir af láni. Góðir vinir hafi aðstoðað þau við að gera drauminn að veruleika. Búgarðurinn er um 480 fermetrar að stærð og situr á stórri jörð. Þar má líka finna gestabústaði og sundlaug svo eitthvað sé talið upp.

DailyMail hefur nú greint frá því að fjölskyldan eigi eins eign í Los Angeles sem er í útleigu. Þar bjó fjölskyldan áður en hún flutti á búgarðinn. Kaupin á búgarðinum áttu sér stað rétt rúmum mánuði áður en leikarinn lést.

Á GoFundMe-síðu fjáröflunarinnar segir að ekkja leikarans og börn horfi fram á mikla óvissu, enda sitji þau uppi með reikninga vegna krabbameinsmeðferðarinnar.

„Gjafmildi ykkar mun hjálpa til við að halda þeim uppi, borga reikninga og styðja við menntun barnanna. Hvert framlag, óháð stærð, mun hjálpa Kimberly [ekkjunni] og fjölskyldu hennar að finna fyrir von og öryggi á meðan þau byggja líf sitt upp að nýju. Takk fyrir að íhuga að styðja við þau.“

Vinur leikarans, leikarinn Mehcad Brooks, hefur harðlega gagnrýnt gagnrýnina. „Þið vitið ekkert hvað þið eruð að tala um. Þið vitið ekki um sársaukann sem þau gengu í gegnum. Það er í lagi að halda kjafti þegar maður veit ekki hvað maður er að tala um.“

Brooks segir að það sé þó ekki í lagi að notfæra sér þjáningu annarra fyrir smelli líkt og fjölmiðlar og fleiri séu að gera í þessu máli. Fólk sem var hlýtt til leikarans langaði að styðja fjölskylduna og gerði það. Það sé ekkert að því.

„Það er í lagi að halda kjafti andspænis blindri heimsku, andstyggð og skorti á samkennd.“

Sumir hafa velt fyrir sér hvort að leikarinn hafi ekki verið sjúkra- eða líftryggður og hvort hann sé ekki enn að fá greitt fyrir þættina Dawson’s Creek og önnur verkefni sem hann kom að á ferli sínum. Aðrir hafa svo rifjað upp að leikarinn hafi undanfarið ár boðið upp á alls konar muni frá ferli sínum til að geta greitt fyrir krabbameinsmeðferðina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn