

Egill Ploder Ottósson, útvarpsmaðurinn góðkunni af FM957 og dagskrárstjóri stöðvarinnar, lét loks vaða og er þessa dagana staddur í Istanbúl í Tyrklandi þar sem hann gekkst undir hárígræðslu fyrr í vikunni. Egill hefur ákveðið að fara óvenjulega leið og deila ferlinu opinskátt með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.
Það var nýstofnað íslenskt fyrirtæki, Gefur ráðgjöf, sem sá um skipulag ferðarinnar og hafði milligöngu um aðgerðina. Félagið er í eigu þeirra Einars Bárðarsonar, Baldurs Rafns Gylfasonar og Husamettin Kaymaz, sem er fæddur í Tyrklandi en hefur búið á Íslandi í um 15 ár en hann sinnir fyrirspurnum og samskiptum við stofuna í Tyrklandi
Aðgerðin fór fram á klíníkinni Esthefirst í Istanbúl, sömu klíník og Einar og Baldur gengust undir hárígræðslu á sjálfir þann 4. maí síðastliðinn. Umbreyting þeirra vakti mikla athygli, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, og varð í raun kveikjan að stofnun fyrirtækisins.
Baldur Rafn Gylfason er þekktur hárgreiðslumeistari og heildsali í hárvörum og hefur í áratugi fylgst náið með þróun hárígræðslutækni. Hann segir að eftir viðbrögðin við eigin aðgerð hafi einfaldlega ekki verið aftur snúið. „Þegar fólk sá árangurinn hjá okkur Einari fór allt á fullt. Fólk hafði samband úr öllum áttum og bað okkur að hjálpa sér að komast í sömu aðgerð,“ segir Baldur. „Þá varð ljóst að þetta væri orðið miklu stærra en bara okkar persónulega ferð.“
Í byrjun desember var ákveðið að setja verkefnið í fastan farveg og stofna Gefur ráðgjöf. Husamettin Kaymaz sér um samskipti við klíníkina og utanumhald í Tyrklandi, en Baldur segir það skipta sköpum að hafa mann á staðnum sem þekkir bæði menningu og kerfi.
„Það breytir öllu fyrir fólkið sem fer út. Þeir finna fyrir öryggi frá fyrstu mínútu,“ segir hann.
Sjá einnig: Sjö mánuðir síðan Einar Bárðar fór í hárígræðslu – Svona lítur hann út í dag
Egill var þó ekki einn Íslendingur í þessari ferð, því fjórir aðrir fóru í hárígræðslu í sömu viku með aðstoð Gefur ráðgjafar. Flestir kjósa að fara hljóðlega í slíkar aðgerðir, en Egill ákvað að gera hið gagnstæða og deila ferðalaginu skref fyrir skref.
„Hárið fór líklega að byrja að þynnast svona aðeins strax í menntaskóla. En byrjaði svo sem ekki að trufla mig fyrr en ég nálgaðist þrítugsaldurinn,“ segir Egill, sem er 31 árs, í samtali við DV um ferðina og ferlið allt.
Fylgja má Agli á Instagram þar sem hann sýnir frá ferlinu. Sjá Pt. 1 og Pt. 2 hér.

Aðspurður um hvort hann hafi notað einhverjar vörur eða farið meðferðir hér heima til að auka hárvöxtinn svarar Egill:
„Maður er svona búinn að reyna hitt og þetta. Ég prófaði nokkrar meðferðir með allskonar hárvörum og vítamínum sem ég kannski hafði ekki þolinmæði í að klára alveg í gegn. Núna undir lokin var ég að vinna meira með „trixið“ sem margir þunnhærðir þekkja. Það er þá að spreyja dökku þurrsjampói í hársvörðinn þar sem það sást sem mest í skallann eftir að ég var búinn að setja vax. Sem virkar reyndar mjög vel. En auka bras sem ég verð ánægður með að sleppa við vonandi!“
„Þetta er auðvitað búið að vera ákveðið „grín“ í Brennslunni í mörg ár. Grín sem átti alltaf við einhver rök að styðjast!“ segir Egill aðspurður um af hverju hann skellti sér til Istanbúl og það núna.
„Ég var búinn að heyra margar sögur af fólki í kringum mig sem hafði farið og gengið vel en svo þegar Baldur og Einar sýndu sinn svakalega árangur og komu svo í viðtal til okkar í útvarpið þá var ég orðinn alveg seldur. En í grunninn er þetta einfalt. Mig langaði bara í þykkara og flottara hár. Hafa meira til að vinna með!“

Skiptir það máli fyrir (unga) karlmenn að vera með hár og af hverju?
„Ég get ekki svarað fyrir alla unga karlmenn. Þetta er auðvitað mjög persónubundið. Auðvitað má bara raka hárið og það fer mörgum mjög vel. Ég hafði kannski ekki trú á því að það myndi fara mér neitt sérstaklega vel og því tók ég þessa ákvörðun. En eftir að hárið var tekið af fyrir aðgerðina þá var ég nú bara nokkuð sáttur með mitt höfuðlag. Þannig ég gæti allt eins rakað það af á sumrin og safnað í smá lubba á veturna!“
Egill var búinn að kynna sér lauslega ferlið við hárígræðslu og segist hafa talað við nokkra félaga í kringum sig sem höfðu gengið í gegnum þetta.
„Ég var ekki beint búinn að fara í neina rannsóknarvinnu fyrr en ég sá árangurinn hjá Baldri og Einari. Eftir það tókum við góðan fund og fórum yfir ferlið frá A-Ö.“

Var eitthvað sem kom þér á óvart við ferðina og hárígræðsluferlið?
„Það sem hefur komið mér helst á óvart er hvað þetta var minna mál en ég var að búast við. Margir hafa talað um mikinn sársauka í aðgerðinni sjálfri. Þar eru menn augljóslega ekki að ljúga neinu en greinilega ansi mismunandi eftir því hvaða klínik eða stað er farið á. Ég og aðrir sem voru í aðgerðinni á sama degi vorum sammála því að þetta hafi nú ekki verið neitt sérstaklega sársaukafullt. Ég myndi lýsa sársaukanum sem svipuðum og að fara í tattú en einungis í 2-3 mínutur. Svona 4/10 í sársaukastaðal og tók fljótt af. Annað hefur ekki komið mikið á óvart. Maður vissi að aðgerðinni fylgir oft bólga dagana eftir og það er að koma aðeins í ljós núna.“

Hvernig leið þér fyrir og eftir aðgerðina?
„Það var eðlilegur fiðringur í maganum á aðgerðardegi. Smá stress sem tók svo fljótt af þegar aðgerðin hófst. Eftir aðgerð fór hópurinn saman í kvöldmat og horfðum við á landsleikinn seinna um kvöldið. Dagarnir eftir hafa svo verið nokkuð venjulegir með rölti í mollinu og þessir týpisku hlutir sem maður gerir í útlöndum til að drepa tímann á milli þess að vera í skoðun og skolun á klíníkinni.“
Og Egill hefur þetta að segja við aðra (unga) karlmenn um sína reynslu:
„Ég vil bara segja að ef að einhverjir hafa verið óöruggir með þetta og hafa hugsað sér að prófa að kynna sér þetta vel. Ég vona að ég hafi getað hjálpað einhverjum með því að sýna vel og mikið frá ferlinu og þar af leiðandi svarað flestum spurningum sem fólk hefur haft varðandi ferlið. Ég að minnsta kosi tók ákvörðunina og sé ekki eftir því í dag. En svo má auðvitað líka taka ákvörðun um að raka bara hárið og njóta lífsins þannig. Svo lengi sem að allir séu sáttir í eigin skinni!“
