fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Jay Leno gáttaður yfir spurningu sem hann fékk um veikindi eiginkonunnar og segir tímana breytta

Fókus
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsmaðurinn Jay Leno elskar eiginkonu sína, Mavis Leno. Þau hafa verið gift í 45 ár og gengið í gegnum súrt og sætt. Nú ganga þau í gegnum erfiðasta tímabil sambandsins, en Mavis er með alvarlega heilabilun sem mun ekki ganga til baka. Jay Leno hefur nú verið skipaður lögráðamaður konu sinnar og er hennar helsti umönnunaraðili.

Hann hefur tjáð sig opinskátt um þær áskoranir sem fylgja veikindunum. Mavis þekkir hann enn þú hún sé farin að ruglast mikið. Hann nýtur því tímans sem þau eiga eftir saman og segir að þau hjónin geti enn fundið gleðina þrátt fyrir erfiðleikana.

Það kom honum þó nokkuð á óvart að fólk virðist ekki telja það sjálfsagt að leggja allt annað til hliðar til að hugsa um veikan maka.

„Uppáhaldið mitt – og það gerist varla meira Hollywood – er þegar maður kom að tali við mig og spurði: Svo ætlar þú að næla þér í kærustu núna?“

Sjónvarpsmaðurinn greinir frá þessu í hlaðvarpinu Life Abovve the Noise. Hann segist hafa svarað manninum undrandi:

„Sko, nei. Ég á kærustu, ég er nefnilega giftur. Við erum búin að vera gift í 45 ár, veistu hvað ég meina? Við erum í þessu saman. Maður getur ekki bara sagt: Hey elskan ég er að fara að hitta kærustuna, kem heim síðar.“

Hann segist hafa tekið því alvarlega þegar hann stóð fyrir framan prestinn með Mavis sinni fyrir 45 árum og hét því að elska hana og varðveita út lífið. Það eigi að vera sjálfsagt að sjá um maka sinn í veikindum. En nú virðist tímarnir vera breyttir. Áður fyrr hefði það ekki þótt óvenjulegt að eiginmaður stæði við hlið eiginkonu sinnar í gegnum erfið veikindi.

„Ég hef í raun aldrei þurft að takast á við erfiðleika í lífinu. Ég gekk ekki í herinn, ég þurfti aldrei að skjóta nokkurn. Þetta er mín áskorun og ég er ánægður með að standast prófið því maður veit það aldrei hvernig maður tekst á við svona aðstæður, eða í raun hvaða aðstæður sem er. Svo ég vil trúa því að ég sé að breyta rétt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short