fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Musk ætlar að krefjast fullrar forsjár sonar síns vegna afsökunarbeiðni barnsmóðurinnar

Fókus
Mánudaginn 12. janúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umdeildi auðkýfingurinn Elon Musk segist ætla að krefjast þess að fara einn með forsjá sonar sem hann á með áhrifavaldinum Ashley St. Clair. Þetta ætlar hann að gera eftir að Ashley baðst afsökunar á fordómafullum ummælum um trans samfélagið.

„Ég mun í dag krefjast fullrar forsjár, í ljósi yfirlýsinga hennar sem gefa til kynna að hún gæti leyft eins árs dreng að gangast undir kynleiðréttingu,“ skrifaði Musk á samfélagsmiðli sínum X.

Ashley hefur þó hvorki gefið til kynna að sonur þeirra sé trans né að til standi að senda hann í kynleiðréttingu.

Það sem hún gerði var að svara öðrum netverja sem krafðist svars um fordómafull ummæli áhrifavaldsins um trans fólk. Ashley brást við þessari áskorun og svaraði:

„Ég finn fyrir gífurlegri sektarkennd fyrir minn hlut í þessu. Og jafnvel meiri sektarkennd vegna ummæla í gegnum tíðina sem gætu hafa valdið systur sonar míns sársauka.“

Þarna vísar Ashley til dóttur Musk úr fyrra sambandi, Vivian, sem er trans kona.

„Ég veit ekki hvernig ég get bætt þetta upp en ég hef reynt eins og ég get að læra og tala máli þeirra innan trans samfélagsins sem ég hef sært.“

Ashley segist hafa verið á báðum áttum um það hvort hún ætti opinberlega að lýsa yfir stuðningi sínum við trans samfélagið. Hún hafi ekki verið viss um að það væri gagnlegt og taldi að sumir gætu talið það óheiðarlegt af henni í ljósi fyrri ummæla hennar.

„Jafnvel þetta svar mitt mun valda móðursýki hjá hægrinu, en já, ég sé eftir þessu. Láttu mig vita hvernig ég get aðstoðað.“

Ashley á í forsjárdeilu við Musk. Hún opnaði sig um það í ágúst og lýsti því hvernig undanfarið ár hefði rústað ferli hennar.

„Jæja, eftir ár af óvæntu sjálfsvígi ferils míns, vafasömum lífsákvörðunum og eyðu á ferilskránni á LinkedIn sem er ekki hægt að skýra með lögmætum hætti hef ég ákveðið að byrja með hlaðvarp,“ sagði Ashley í ágúst um hlaðvarp sitt Bad Advice.

Hún sagðist hafa ákveðið að byrja með hlaðvarpið þar sem hún væri við það að vera borin út af heimili sínu.

Musk og áhrifavaldurinn kynntust í gegnum X og áttu í stuttu ástarsambandi. Þeim fæddist svo sonur í september árið 2024, eins og áður segir, en Ashley opinberaði ekki tilvist hans fyrr en í febrúar í fyrra. Drengurinn heitir Romulus.

Ashley hefur farið fram á fulla forsjá drengsins en Musk hefur gripið til varna. Hann á 13 önnur börn og þó nokkrar barnsmæður. Musk neitaði lengi að gangast undir faðernispróf en sagðist engu að síður hafa samþykkt að borga Ahsley meðlag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn