fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Sonurinn „vildi deyja“ þegar hann horfði á kynlífssenur móðurinnar á hvíta tjaldinu

Fókus
Sunnudaginn 11. janúar 2026 16:30

Paltrow og sonur hennar Moses

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sonur leikkonunnar Gwyneth Paltrow, Moses, er sagður vera niðurlægður eftir að hafa horft á kynlífssenur hennar og Timothée Chalamet í myndinni Marty Supreme.

„Ó, guð minn góður! Aumingja sonur minn,“ sagði Paltrow við Demi Moore, sem leiddi spurt og svarað þátt eftir sýningu myndarinnar í San Vicente Bungalows í Santa Monica í Kaliforníu á föstudaginn.

„Geturðu ímyndað þér þegar hann kom á frumsýninguna í Los Angeles? Hann vildi deyja,“ bætti hún við um 19 ára gamlan son sinn eftir að þau mættu saman á frumsýninguna í desember. Vikuna á eftir mættu þau á frumsýninguna í New York ásamt dóttur Paltrow, Apple.

Myndin, sem leikstýrt er af Josh Safdie, fylgir Marty Mauser (Chalamet), skósölumanni sem verður gagntekinn af að verða besti borðtennisleikari heims í New York borg á sjötta áratugnum. Paltrow leikur borðtenniskonu, sem hún lýsti áður sem „þessari konu sem er gift einhverjum sem er í borðtennismafíunni“ í viðtali við Vanity Fair í mars síðastliðnum. Hún lét einnig í ljós að hún og Chalamet, sem er þrítugur, „stunda mikið kynlíf í þessari mynd, það er mikið mikið.“

Chalamet og Paltrow

Paltrow lofsyngur frammistöðu Chalamet í myndinni og kallaði hann jafnvel „kyntákn með hugsun“. „Hann er bara mjög kurteis, rétt uppalinn, ég ætlaði að segja krakki … hann er maður sem tekur vinnuna sína mjög alvarlega og er skemmtilegur félagi,“ sagði hún.

Leikarnir nutu aðstoðar nándarráðgjafa fyrir kynlífssenurnar, sem Paltrow útskýrði að væri nýtt hugtak fyrir hana.

„Það er til eitthvað sem kallast nándarráðgjafii, sem ég vissi ekki að væri til,“ sagði hún og bætti við að þegar ráðgjafinn spurði hvort hún væri sátt við ákveðna hreyfingu, svaraði hún: „Ég er frá þeim tíma þegar maður er nakinn, fer upp í rúm og svo kveikt á myndavélinni.“

Chalamet fékk Critics Choice verðlaunin fyrir viku fyrir hlutverk sitt. Myndin hefur fengið fjölda annarra tilnefninga, meðal annars þrjár til Golden Globe sem fara fram í kvöld.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn