fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fókus

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“

Fókus
Fimmtudaginn 11. júní 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, er nú staddur á Grænlandi í opinberum erindagjörðum sem þingmaður og formaður Vestnorræna ráðsins.

Jón kom til Grænlands á þriðjudag og hefur hann lent í ýmsum ævintýrum eins og lesa má í færslum hans á Facebook. Í einni slíkri sem birtist í gærkvöldi sagði hann frá óvenjulegri reynslu sinni þegar hann vaknaði fyrsta daginn sinn í Qaqortoq á Suður-Grænlandi.

„Ég hrökk upp við það að hurðin á hótelherberginu mínu var opnuð. Það var sérkennilegt vegna þess að ég mundi að ég hafði læst henni í gærkvöldi. Þegar ég reis upp við dogg og kíkti til dyra sá ég að hún var lokuð og mig hafði greinilega bara verið eitthvað að dreyma þannig að ég lagðist aftur á koddann og sofnaði strax aftur,” segir Jón sem upplifði síðan annað dularfullt augnablik.

„Ekki veit ég hvað ég hafði sofið lengi þegar ég vaknaði aftur upp, nú við það að einhver sló mig þéttingsfast í hægri öxlina að ég hrökk upp með andfælum. En það var enginn sjáanlegur og ég aleinn í herberginu. Ég leit á klukkuna og hún var rúmlega sjö en ég hafði stillt vekjarann á 7.30,” segir Jón og bætir við:

„Ég hef aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta. Það var fyrir nokkrum árum en þá lá ég sofandi í rúminu heima þegar ég var sleginn fast í annað lærið.“

Ef marka má færslu Jóns, þar sem hann segir frá ævintýrum gærdagsins, er hann yfir sig hrifinn af Grænlandi.

„Aftur og aftur fékk ég gæsahúð af hrifningu. Þetta var ógleymanlegur dagur, þrunginn andlegum og tilfinningalegum upplifunum, hugsunum og hugrenningatengslum sem ég á eflaust eftir að þurfa tíma til að vinna úr. Eins skringilega og það kann að hljóma þá er það oft svo að þegar við horfumst í augu við fortíðina og rýnum í hana, jafnvel 1000 ár aftur í tímann, þá fer okkur að birtast mynd. Og þegar hún skýrist þá sjáum við að hún er spegilmynd okkar sjálfra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rífur loks þögnina um plötuna sem gerði gerði allt vitlaust og fjallaði um skilnað hans

Rífur loks þögnina um plötuna sem gerði gerði allt vitlaust og fjallaði um skilnað hans
Fókus
Fyrir 2 dögum

Frambjóðandi svarar fyrir sig eftir rætið grín frá spjallþáttastjórnandanum – „Ég á ekkert eftir“

Frambjóðandi svarar fyrir sig eftir rætið grín frá spjallþáttastjórnandanum – „Ég á ekkert eftir“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Magnaður árangur Gunnlaugs Árna sem braut blað í gærkvöldi

Magnaður árangur Gunnlaugs Árna sem braut blað í gærkvöldi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson