fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Fókus
Mánudaginn 2. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingibjörg Einarsdóttir er fyrst og fremst móðir tveggja stráka. Hún er tannsmiður og aðjunkt við háskólann. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman. Ingibjörg hefur gengið í gegnum margt og fer ekki fögrum orðum um kerfið sem hefur brugðist henni og fimmtán ára syni hennar illa.

Ingibjörg eignaðist eldri son sinn mjög ung og annaðist á sama tíma eldri systur sína sem hafði greinst með geðhvarfasýki.

„Ég var fimmtán ára og hún skráði mig sem nánasta aðstandanda svo ég fékk endalaus símtöl frá spítölum, geðdeild og öðru.”

Ingibjörg hélt þessu leyndu frá foreldrum sínum þar til hún varð 25 ára. Ingibjörg missti systur sína 2014 þegar hún féll fyrir eigin hendi.

„Ég veit ekki hvort það sem ég gekk í gegnum með systur mína hafi undirbúið mig fyrir það sem átti eftir að koma síðar.”

Skaraði fram úr

Yngri sonur Ingibjargar, sem er nýlega orðinn fimmtán ára, var alveg frá upphafi mikið ofvirkur og fékk greiningu snemma.

„Hann var eiginlega bara freak of nature því hann var svo góður í öllum íþróttum.”

Hann byrjaði ungur í fimleikum og skaraði strax fram úr. Hann var fljótlega farinn að æfa upp fyrir sig og kominn í landsliðið.

Þegar hann var tólf ára fann Ingibjörg að hann væri kominn í ofþjálfun og taugakerfið orðið tæpt. „Ég bað um að hann fengi lengra jólafrí frá æfingum og myndi koma aftur inn í tæka tíð fyrir mót. Það var samþykkt en hann tekinn úr liðinu þegar kom að því.”

Á sama tíma og þessi höfnun átti sér stað varð uppákoma í skólanum sem hann kom hvergi nálægt.

„Það voru uppákomur þar sem hann upplifði að starfsmenn þyldu hann ekki af því hann var ofvirkur. Ég gerði ekkert úr því á þeim tíma.”

„Hann sagði mér svo að kennarinn hans hafi sagt: „Það verður ekkert úr þér þar sem þú getur ekki setið kyrr!”

TikTok-áskorun endaði illa

Í kjölfar alls þessa byrjaði þetta.

„Ég fann hann meðvitundarlausan eftir að hafa tekið þátt í TikTok áskorun að þamba heilan lítra af landa.“

Ingibjörg talar um að hafa strax í kjölfar fimleikanna fengið beiðni til sálfræðings og beðið um aðstoð um leið og vandinn með neysluna byrjaði.

„Eftir að hafa beðið í töluverðan tíma og vandinn orðinn mun stærri kom inn MST en það kemur alltaf allt of seint. Hann var settur á Stuðla þar sem hann kynntist fleiri og sterkari fíkniefnum.”

Alltaf var verið að segja að hann væri á lista til að fara í meðferð en það var engin meðferð í boði.

Ekki hissa á magninu af fíkniefnum

Fram kemur að drengurinn hafi farið í tólf vikur á Blönduhlíð og nokkra mánuði á meðferðargang á Stuðlum en aldrei kom hrein þvagprufa. THC mælingin hækkaði og það mældust ný efni í honum. Hann strauk stanslaust út af þessum stöðum og meira að segja smyglaði manneskju inn á Stuðla.

„Ef það er ekkert mál að fara með auka ungling inn á Stuðla og það fer fram hjá tveimur vöktum þá er ég ekki hissa á magninu af fíkniefnunum þarna inni.”

Ingibjörg segir að sonur hennar hafi sagt einn daginn við hana, þegar hann var inni á Stuðlum, hvort hann mætti fara erlendis í meðferð því meðferðir á Íslandi virkuðu ekki. Úr varð að hann fór til Suður-Afríku.

„Það er hrikalega erfitt að hafa barnið sitt hinum megin á hnettinum, í Suður-Afríku, en hann er á lífi og ég er ekki viss um að hann væri það ef hann hefði ekki farið út.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hvað er innkaupakörfukenningin og hvað segir hún um þig?

Hvað er innkaupakörfukenningin og hvað segir hún um þig?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi