

Ástrós Traustadóttir dansari og Adam Karl Helgason matgæðingur hafa sett íbúð sína við Gautland 7 á sölu. Ásett verð er 81,9 milljónir króna.
Íbúðin er 86,1 fm á 2. hæð í húsi sem byggt var árið 1969.

Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi borðstofu/stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Parið hefur tekið íbúðina í gegn, meðal annars gert upp eldhús og baðherbergi.


Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.