fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Fókus
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 12:16

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarnan Lisa Rinna hefur tjáð sig um þrálátar sögusagnir um að eiginmaður hennar, Harry Hamlin, sé samkynhneigður.

„Við skulum bara koma þessu á hreint í eitt skiptið fyrir öll: Harry er gagnkynhneigður,“ skrifar Rinna í nýrri bók sinni, You Better Believe I’m Gonna Talk About It.

„Hann er ekki hommi á nokkurn hátt, lögun eða formi, án þess að það sé þó nokkuð að því.“

Raunveruleikastjarnan, sem gerði garðinn frægan í Real Housewives-þáttunum, segir að sögusagnirnar megi rekja allt aftur til ársins 1982 þegar Harry Hamlin lék samkynhneigðan mann í kvikmyndinni Making Love.

„Meginstraumskvikmyndir um samkynhneigða menn eru enn sjaldséðar í dag en í þá daga var slíkt óheyrt,“ útskýrir Rinna. Hamlin fannst rétt að taka hlutverkið að sér á sínum tíma og sýndi að mati Rinnu mikið hugrekki. Hann hafði þó ekki hugmynd um að kvikmyndin myndi hafa langvarandi afleiðingar á einkalíf hans og feril.

Rinna segir að Hamlin hafi í kjölfarið verið settur á bannlista í kvikmyndaiðnaðinum. Hann hafi leikið hlutverkið svo vel að allir voru sannfærðir um að hann væri hommi. Það hafi svo ekki hjálpað að Hamlin er mikill smekksmaður sem elski að klæða sig í smart föt.

„Þegar þú ert myndarlegur maður í Hollywood með góðan smekk, þá greinilega jafngildir það því að vera hommi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé