fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Leikarinn sakar Hollywood-stjörnur um hræsni í umræðunni um ICE

Fókus
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 11:36

Jamie Kennedy í þætti Osbourne.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski grínistinn Jamie Kennedy hefur látið í ljós harða gagnrýni á Hollywood-stjörnur sem hafa gagnrýnt bandarísku innflytjendastofnunina ICE að undanförnu.

Jamie var gestur Jack Osbourne í hlaðvarpsþætti þess síðarnefnda, Trying Not to Die, á dögunum.

Í þættinum sagði Kennedy, sem er 55 ára, að honum þætti mótsagnakennt þegar leikarar og tónlistarmenn nýttu sér „rauðu dreglana“ á hinum ýmsu hátíðum til að vara við „fasísku stjórnarfari“ á sama tíma og þeir væru sjálfir undir vernd öryggisvarða flestum stundum.

„Þegar þú ert með leikara á rauða dreglinum á verðlaunahátíð sem segir hluti eins og „við erum undir fasísku stjórnarfari“ og talar um einræði, þá gæti viðkomandi varla verið meira veruleikafirrtur,“ sagði Kennedy í þættinum.

Hann bætti við að slíkar yfirlýsingar stæðust illa skoðun miðað við aðstæður þeirra sem létu þær falla. „Þú getur ekki sagt að þú sért undir einræðisstjórn þegar þú ert bókstaflega sjálfur að hegða þér á einræðislegan hátt,“ sagði hann.

Í viðtalinu vék Kennedy einnig að mótmælum gegn ICE og sagði þau að sínu mati undarleg í ljósi þess að stofnunin starfaði samkvæmt gildandi lögum. Hann hélt því fram að umboðsmenn ICE væru að reyna að losa Bandaríkin við glæpamenn. „Við skulum fylgja þeim lögum sem við höfum,“ sagði hann.

Þá hvatti hann fræga einstaklinga sem eru ósáttir við stofnunina til að fara í fremstu víglínu og beita sér sjálfir, í stað þess að gagnrýna kerfið frá kvikmyndahátíðum og öðrum viðburðum í einskonar lúxusumhverfi.

Ummæli Kennedys koma í kjölfar þess að nokkrir þekktir listamenn hafa opinberlega gagnrýnt ICE undanfarið. Á Independent Spirit verðlaunahátíðinni nýverið vakti leikkonan Natasha Rothwell, sem er hvað þekktust úr þáttunum The White Lotus, athygli þegar hún lét í ljós harða andstöðu við stofnunina.

Fleiri listamenn, þar á meðal tónlistarfólkið Billie Eilish og Bad Bunny, hafa einnig gagnrýnt störf ICE á undanförnum misserum og kallað eftir breytingum á framkvæmd innflytjendamála í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short