fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Fókus

Gleðin verður við völd á vinsælli prjónasmiðju í Gerðubergi

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 12:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stella Ögmundsdóttir textíllistakona og hönnuður tekur vel á móti prjónurum á Borgarbókasafninu Gerðubergi í kvöld.
Nú geta prjónarar glaðst því miðvikudagskvöldið 18. febrúar, mætir textíllistakonan Stella Ögmundsdóttir aftur á Borgarbókasafnið Gerðubergi með sína feikivinsælu prjónasmiðju.
Í smiðjunni, sem er ætluð bæði byrjendum og lengra komnum, prjóna þátttakendur svokallaða Helgarpeysu eftir einni af uppskriftum Stellu úr garnendum og -afgöngum sem hafa safnast upp.
Peysan hentar bæði byrjendum jafnt sem lengra komnum og þar sem hún er prjónuð með 12 mm stórum hringprjón þá vinnst hún mjög hratt.
Stella, sem hannar og prjónar undir merkjum Fözz Studio, leggur ríka áherslu á að nýta afgangsgarn í hönnun sinni og mun deila ýmsum sniðugum aðferðum og hugmyndum með þátttakendum í smiðjunni.
Fullt var út úr dyrum þegar Stella hélt smiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi í síðustu viku svo viðbúið er að góð mæting verði í kvöld.
Þess má geta að um þriggja kvölda prjónasmiðju er að ræða en ekki gerir til þótt þátttakendur missi úr skipti.
Mynd frá fyrsta kvöldinu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 3 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ísraelar velja lag fyrir Eurovision – Strax á meðal þeirra sigurstranglegustu

Ísraelar velja lag fyrir Eurovision – Strax á meðal þeirra sigurstranglegustu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tveir handteknir eftir að „varakóngurinn“ fannst látinn á heimili sínu eftir enn eina fegrunarmeðferðina

Tveir handteknir eftir að „varakóngurinn“ fannst látinn á heimili sínu eftir enn eina fegrunarmeðferðina