

Í sjálfum leiknum mættust Seattle Seahawks og New England Patriots og lauk leiknum með öruggum sigri Seahawks, 29:13.
En eins og svo oft áður beindust augu margra að hálfleikssýningunni, en að þessu sinni var það Bad Bunny, sem er fæddur á Púertó Ríkó, sem sá um að skemmta mannskapnum. Hann flutti tónlist sína eingöngu á spænsku og féll það ekkert sérstaklega vel í kramið hjá Trump.
„Hálfleikssýningin í Super Bowl er algjörlega hræðileg, ein sú versta nokkru sinni! Hún meikar ekkert sens, er móðgun við mikilleika Bandaríkjanna og endurspeglar hvorki okkar viðmið um árangur, sköpunargáfu né afburði. Enginn skilur orð af því sem þessi maður er að segja og dansinn er ógeðfelldur, sérstaklega fyrir ung börn sem horfa víðs vegar um Bandaríkin og um allan heim,“ sagði forsetinn meðal annars og bætti við að sýningin væri „blaut tuska“ í andlit Bandaríkjanna – eða „slap in the face“ eins og hann orðaði það.