fbpx
Laugardagur 14.mars 2026
Fókus

Myndaveisla: Fögnuðu nýju sódavatni á Vinnustofu Kjarvals

Fókus
Mánudaginn 2. febrúar 2026 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Icelandic Glacial blés til veislu á Vinnustofu Kjarvals fyrir helgi til að kynna nýtt sódavatn sitt. Veislan var vel sótt af gestum hvaðanæva af úr bransanum. Tapas-barinn sá um léttar veitingar og boðið var upp á kokteila sem voru sérhannaðir til að leyfa sódavatninu að njóta sín. Ragga Hólm sá um tónlist og stemningu.

„Það var virkilega ánægjulegt að finna hversu mikill áhugi er á nýju sódavatni Icelandic Glacial. Viðtökurnar hafa verið mjög jákvæðar, bæði á viðburðinum og nú þegar í verslunum,“ segir Margrét Guðjónsdóttir, markaðsstjóri Icelandic Glacial, í fréttatilkynningu.

Meðal gesta var starfsfólk Icelandic Glacial og Cocoa-Cola á Íslandi, sem er dreifingaraðili vörumerkisins hér á landi. Í tilkynningu segir:

„Samstarf fyrirtækjanna er mikilvægt skref í að styrkja stöðu Icelandic Glacial á heimamarkaði.Icelandic Glacial hefur lengi notið mikilla vinsælda meðal ferðamanna og heimamanna, en með þessari nýju viðbót er fyrirtækið nú einnig að svara aukinni eftirspurn frá íslenskum neytendum.

Um er að ræða hágæða sódavatn í áldósum, framleitt á Íslandi í verksmiðju fyrirtækisins í Ölfusi. Vatnið á uppruna sinn í náttúrulegri uppsprettu sem síast í gegnum hraunlög og verndast af íslenskri náttúru. Þessi einstaki uppruni tryggir hreinleika og stöðug gæði, án óþarfa meðhöndlunar.

Með nýju sódavatni styrkir Icelandic Glacial enn frekar stöðu sína sem framleiðandi íslensks gæðavatns þar sem sjálfbærni, hreinleiki og ábyrgð eru höfð að leiðarljósi.“

Stemninguna fangaði Gabríela Rut Vale á meðfylgjandi myndum.

Mynd/Gabríela Rut Vale

Mynd/Gabríela Rut Vale
Mynd/Gabríela Rut Vale
Mynd/Gabríela Rut Vale
Mynd/Gabríela Rut Vale

Mynd/Gabríela Rut Vale
Mynd/Gabríela Rut Vale
Mynd/Gabríela Rut Vale
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Opna samtalið við Rice
Fókus
Fyrir 1 viku

Gaf eiginmanni sínum óvenjulega fertugsafmælisgjöf – Þetta voru áhrifin á sambandið

Gaf eiginmanni sínum óvenjulega fertugsafmælisgjöf – Þetta voru áhrifin á sambandið
Fókus
Fyrir 1 viku

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“