fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Íslendingar rifja upp heimskulegustu hlutina sem þeir gerðu sem börn – „Man vel eftir hversu ofboðslega reið mamma mín varð“

Fókus
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við gerum öll mistök og sem börn gerðu flest okkar hluti sem gætu talist „heimskulegir“ í daglegu tali. Skemmtilegur þráður í hópnum Iceland á Reddit hefur vakið talsverða athygli en þar rifja Íslendingar upp heimskulegustu hlutina sem þeir gerðu sem börn.

Í þræðinum kennir ýmissa grasa og rifjar til dæmis einn upp þegar hann kveikti í sinu og annar þegar hann setti lófann á brennheita eldavélarhellu til að athuga hvort hún væri heit.

Hér að neðan má sjá nokkra skemmtilega punkta:

„Þurfti að prófa að kveikja í eldspýtu með munninum. Tókst svo vel til að þegar kviknaði í eldspýtunni fór hún upp í nefið á mér þar sem ég sviðnaði vel.“

Þessi sami rifjar einnig upp að honum hafi fundist sniðugt dag einn að prófa að klippa á snúruna af heimilisryksugunni á meðan móðir hans var að ryksuga. „Man ekki hvaða tól ég notaði til þess en ég man vel eftir hversu ofboðslega reið mamma mín varð.“

Hann bætir svo við að hann hafi hellt vatni ofan í sjónvarpið meðan það var enn í gangi til að sjá hvað gerðist og þá hafi hann ryksugað vatn upp úr klósettinu.

Annar rifjar upp heldur ógeðfellda sögu:

„Ég spreyjaði fullt af prumpuspreyi í klósettið á unglingadeildinni. Hélt að ég væri rosa sniðugur en lyktin barst um allan skólann. Bæði kennarar og krakkar skömmuðu mig og ég fór grátandi heim.”

„Ég var viss um að ég gæti flogið ef ég bara einbeitti mér nógu vel. Ákvað að taka stökkið. Endaði (augljóslega) með alblóðugt andlit.“

„Ég hélt 4. ára að Kókómjólk væri bara „KógogMjólk“… þannig ég ákvað bara að gera heimablöndu sjálfur… Aldrei liðið jafn scammed áður! xD”

„Margt og mikið, en einhverra hluta vegna skaust upp í kollinn á mér þegar ég notað Head & Shoulders Citrus sem lube. Í kjölfarið fylgdi mikill sviði í 2-3 vikur og litli vinurinn var flagnandi í margar vikur.“

„Reyndi að “ganga plankann” á uppblásinni sundlaugardýnu. Mjög praktískri kennslustund í eðlisfræði og nokkrum saumasporum á hnakkanum seinna: engin sundlaug fyrir mig það sem eftir var af ferðinni svo ég fái ekki sýkingu í sárið.“

„Kveikti í sinu 13 ara með tveim vinum. Slökkvilið og lögregla = brjálaðir foreldrar.“

„Ég setti allan lófann beint á eldavélarhellu til að athuga hvort hún væri heit. Brenndi mig auðvitað og uppskar risastóra blöðru yfir allan lófann.“

„Ég drakk kertavax, stakk gafli í innstungu því það kitlaði, teiknaði á bílinn hans pabba með nagla, stakk bróðir minn með skrúfjárni og margt fleira.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short