fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Vandræðalegt augnablik Laufeyjar á Golden Globe – „Það er svo sárt að horfa á þetta“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 12. janúar 2026 15:30

Laufey.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingar gætu haldið að frægð tónlistarkonunnar Laufeyjar Lín sé orðin slík að hvert mannsbarn á jarðkringlunni þekki nafn hennar. Það er þó ekki svo. Reyndar hafa margir jarðarbúar átt í stökustu vandræðum með að bera fram nafnið, sem er kannski skiljanlegt. Laufey lenti þó sennilega í undarlegustu nafnauppákomunni hingað til á Golden Globe verðlaunahátíðinni í nótt.

„Ég heit ekki Megan, svo að ég veit ekki…“ heyrðist Laufey segja við ljósmyndara þegar hún var á rauða dreglinum í sláandi flottum appelsínugulum kjól. Virtist hún ekki geta annað en flissað að þessari uppákomu sem náðist á myndband og var birt á miðlinum Deadline.

Höfðu ljósmyndararnir sífellt kallað nafnið „Megan“ til Laufeyjar til þess að reyna að ná athygli hennar.

Sjá einnig:

Laufey stórglæsileg á Golden Globes

Fjölmargir aðdáendur brugðust við þessu á samfélagsmiðlum og virtust vorkenna Laufeyju.

„Það er svo sárt að horfa á þetta. Af hverju gerðu þeir geitinni minni þetta?“ spurði einn, en geit vísar of til þeirra bestu. Það er GOAT (Greatest Of All Time).

„Bíddu, Megan úr Katseye? Hún lítur svolítið eins og hún út,“ sagði annar. Það er hin ameríska söngkona Megan Skiendiel úr hljómsveitinni Katseye.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn