fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Fókus

María Sigrún á batavegi en enn er töluvert eftir – „Ég hlakka svo til að geta beygt bæði hnén aftur“

Fókus
Föstudaginn 15. ágúst 2025 11:30

María Sigrún Hilmarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona á RÚV greinir frá því að hún sé á batavegi eftir alvarlegt skíðaslys sem hún lenti í um síðustu páska. Hún segist vera á batavegi en þó sé nokkuð enn í að hún verði söm aftur en María Sigrún segir að gangi vel á næstum vikum reikni hún með að geta snúið aftur til vinnu í október.

María Sigrún ræddi slysið við fjölmiðla í byrjun maí og greindi frá því að hún hefði verið á skíðum á Snæfellsjökli með fjölskyldu sinni þegar hún hefði dottið og þá um leið hefði snúist svo illa upp á vinstri fótinn að hún hefði ökklabrotnað og liðband og krossband í hnénu slitnað. Sagðist María Sigrún í samtali við Vísi  aldrei hafa upplifað annan eins sársauka en hún hefur fætt þrjú börn.

María Sigrún fór í aðgerð á brotna ökklanum á páskadag en þá átti hún eftir að fara í aðgerð á hnénu.

Hún greinir síðan frá því í nýrri færslu á Instagram að hnéaðgerðin hafi farið fram í fyrradag. Aðgerðin hafi verið margþætt en gengið vel:

„Þar var meðal annars búið til nýtt fremra krossband úr sin sem tekið var af framan af sköflungi.“

Næstu skref

María Sigrún segir næstu skref vera þau að á næstum vikum muni hún þurfa að styðjast við hækjur og verkjalyf samhliða markvissri endurhæfingu hjá sjúkraþjálafara. Nú 4 mánuðum eftir slysið sé hún orðin nokkuð góð af ökklabrotinu og ef allt gangi vel á næstu vikum muni hún komast aftur til vinnu um miðjan október. María Sigrún segist hlakka til þess að vinstra hnéð, sem fór svona illa í slysinu, fari aftur að virka eðlilega en það sé líklega enn nokkuð í að það gerist og það sé heldur ekki alveg öruggt:

„Ég hlakka svo til að geta beygt bæði hnén aftur, sitja á hækjum mér og snýta litlum nebbum í augnhæð. Það er ekki gefið og gæti tekið eitt ár, en þangað stefni ég.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Er Trump að takast að losna við frægustu spjallþáttastjórnendur Bandaríkjanna?

Er Trump að takast að losna við frægustu spjallþáttastjórnendur Bandaríkjanna?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stóri dagurinn hjá Söru í dag – „Ég sagði næstum engum frá því“

Stóri dagurinn hjá Söru í dag – „Ég sagði næstum engum frá því“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það prumpar enginn glimmeri alla daga“

„Það prumpar enginn glimmeri alla daga“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Anna Guðný stendur sig vel í Mongólíu – Gerjaða hrossamjólkin smakkast eins og mysa og rennur vel niður

Anna Guðný stendur sig vel í Mongólíu – Gerjaða hrossamjólkin smakkast eins og mysa og rennur vel niður
Fókus
Fyrir 1 viku

Bað kærustuna um að senda vini sínum nektarmyndir – Það kom í bakið á honum

Bað kærustuna um að senda vini sínum nektarmyndir – Það kom í bakið á honum
Fókus
Fyrir 1 viku

Jennifer Lopez meinaður aðgangur að Chanel verslun – Viðbrögð hennar komu á óvart

Jennifer Lopez meinaður aðgangur að Chanel verslun – Viðbrögð hennar komu á óvart