fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Fókus
Miðvikudaginn 25. júní 2025 09:19

Martin Kove. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Martin Kove, sem margir þekkja úr Cobra Kai-þáttunum vinsælu á Netflix, var beðinn um að yfirgefa samkomu sem haldin var í Washington-ríki um liðna helgi eftir heldur furðulega uppákomu.

Leikarinn, sem er orðinn 78 ára, var staddur á Washington State Summer Con-aðdáendaviðburðinum þegar hann beit meðleikara sinn úr þáttunum, Aliciu Hannah-Kim, í höndina.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að Alicia hafi gengið upp að leikaranum og ætlað að heilsa honum en hann brugðist við með því að taka í hönd hennar og bíta hana í handarbakið. Mun Alicia hafa verið með sýnilega áverka eftir bitið.

Martin segir að um grín hafi verið að ræða sem ef til vill gekk of langt. Þau hefðu oft farið í gamnislag við tökur á settinu en hann taldi atvikið ekki alvarlegt.

Alicia hafði engu að síður samband við lögreglu sem mætti á svæðið og tók skýrslu. Að því búnu var Martin beðinn um að yfirgefa svæðið.

Alicia ákvað að leggja ekki fram kæru en fékk þó áverkavottorð til öryggis.

Í yfirlýsingu sem Martin sendi frá sér sagðist hann iðrast gjörða sinna og bað hann Aliciu innilegrar afsökunar.

„Hún er góð og yndisleg manneskja og átti þetta ekki skilið. Ég meinti þetta sem saklaust grín en gekk of langt og það er engin afsökun fyrir hegðun minni. Ég tek fulla ábyrgð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Gulli Helga passaði stórstjörnu þegar hún var barn – „Ótrúlega almennileg“

Gulli Helga passaði stórstjörnu þegar hún var barn – „Ótrúlega almennileg“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“