Ungstjarnan Klara Einars heldur áfram að gefa frá sér nýja tónlist en hún gaf út fimm lög á síðasta ári. Það má segja að ferilli hennar hafa formlega hafist eftir að hún sigraði Vælið, söngkeppni Verzlunarskóla Íslands í lok árs 2023. Þrjú laganna voru hennar eigin og tvö voru samstarfsverkefni með fótboltatöffurunum í Húbba Búbba. Á síðasta ári kom Klara fram á Kótelettunni og á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum ásamt fleiri viðburðum og það verður ekki minna um að vera hjá henni í sumar.
Nýjasta lagið hennar Klöru heitir Ef þú þorir og kom út í gær. Lagið varð til á óvæntan hátt þegar Klara var í stúdíóinu með Ágústi Brynjari og Hákoni Guðna við vinnu á laginu Bara ef þú vissir.
„Við kláruðum það lag svo snemma að það var fullt eftir af tíma í stúdíóinu,” segir Klara. „Hákon fór að spila fyrir mig einhver beats og um leið og ég heyrði þetta ákveðna beat hoppaði ég beint á micinn. Við sömdum lagið held ég bara allt í þessu eina sessioni. Mér finnst einhvern veginn bestu lögin verða til svona, þegar maður er ekkert að pína neitt fram.“
Lagið fjallar um þá tilfinningu þegar maður er að fýla einhvern og bíður eftir að hinn aðilinn taki fyrsta skrefið.
Árið 2025 hófst á jákvæðum nótum þegar Klara var tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. Í kjölfarið komu út tveir dúettar: VBMM? ásamt Katrínu Myrru í febrúar og Bara ef þú vissir með Ágústi Brynjari í mars, sem hafa hlotið mikla spilun á bæði útvarpi og Spotify.
„Síðasta ár var algjör rússíbani, mikil gleði og auðvitað mikil vinna,“ segir Klara. „Tilnefningin til Hlustendaverðlaunanna var ótrúleg viðurkenning og meira en ég þorði að vona. Ég hlakka mikið til að spila í sumar og svo er fleira spennandi efni á leiðinni frá mér.“
Klara mun koma víða fram í sumar, þar á meðal á Kótelettunni, í Vestmannaeyjum um Verslunarmannahelgina, á Reykhóladögum og á fleiri viðburðum sem verða tilkynntir síðar. Þá má einnig búast við frekari útgáfu á nýju efni á næstu mánuðum.