fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

Secret Solstice gengur í endunýjun lífdaga – Alþjóðleg sólmyrkvahátið 2026

Fókus
Föstudaginn 20. júní 2025 11:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau sem stóðu að Secret Solstice tónlistarhátíðinni kynna nú nýtt vekefni: Iceland Eclipse – fjögurra daga tónlistar- og menningarhátíð sem fer fram á Snæfellsnesi þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur yfir Íslandi þann 12. ágúst 2026.

Hátíðin stendur yfir í fjóra daga í ágústmánuði næsta sumar, fá 12. til 15. ágúst, en miðasala hefst fyrir lok þessa sumars.

Fyrir hönd aðstandenda verkefnisins hefur Jón Bjarni Steinsson sent eftirfarandi tilkynningu um hátíðina:

Frá Sólstöðum til Sólmyrkva – Secret Solstice vaknar

Við sem stóðum að Secret Solstice höfum fengið að upplifa margt stórt og sérstakt. Nú höfum við ákveðið að taka næsta skref. Við erum stolt af því að vera hluti af nýju verkefni sem kallast Iceland Eclipse – fjögurra daga tónlistar- og menningarhátíð sem fer fram á Snæfellsnesi þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur yfir Íslandi þann 12. ágúst 2026. Þetta er alþjóðlegur viðburður, framleiddur í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Immersive Experiences (IMXP), sem hafa sérhæft sig í slíkum verkefnum víða um heim – og við leggjum okkar af mörkum héðan að heiman.

Við höfum farið inn í Langjökul, ofan í Raufarhólshell og látið listamenn síga í Þríhnúkagíg – næst á dagskrá er sólmyrkvi við rætur Snæfellsjökuls.

Hellissandur verður einn besti staðurinn til að upplifa almyrkvann næsta sumar – þar verður hann einna lengstur á landinu, rúmar tvær mínútur, og myrkrið fellur yfir rétt eftir kl. 17:45.

Það verður einstakt augnablik – og í kjölfarið tekur við fjölbreytt dagskrá sem blandar saman tónlist, listum, náttúru og sameiginlegri upplifun.

Iceland Eclipse-hátíðin stendur yfir dagana 12.–15. ágúst 2026 og mun bjóða upp á dagskrá með innlendu og erlendu tónlistarfólki, listasýningum, fyrirlestrum og sérstökum viðburðum sem tengjast bæði staðnum og stjörnunum. Um er að ræða takmarkaðan fjölda miða og lögð verður áhersla á sjálfbæra framkvæmd og góða tengingu við heimamenn og náttúruna. Gistimöguleikar verða margir og fjölbreyttir – allt frá tjaldsvæðum yfir í glamping ásamt ýmsum öðrum spennandi möguleikum.
Þó að Iceland Eclipse sé nýr viðburður, þá byggir hann á sömu hugsun og Secret Solstice: að skapa eitthvað sérstakt, minnisstætt og á okkar eigin forsendum. Að bjóða fólki að koma saman, njóta og tengjast – á óvenjulegum stað og á einstökum tíma. Við hlökkum til að segja ykkur meira næstu mánuði.
Fylgist með á eclipse.is – þar hefst skráning fyrir forsölu í dag – miðasala hefst svo í lok sumars

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 1 viku

Fyrrverandi kærastan rýfur loksins þögnina um framhjáhaldsorðróminn – „Ég var niðurbrotin“

Fyrrverandi kærastan rýfur loksins þögnina um framhjáhaldsorðróminn – „Ég var niðurbrotin“
Fókus
Fyrir 1 viku

9 ára stúlka gekk út í myrkrið og sást aldrei aftur – Hvaðan kom dularfulla bókin?

9 ára stúlka gekk út í myrkrið og sást aldrei aftur – Hvaðan kom dularfulla bókin?