fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fókus

Nýtt og óvænt nafn orðað við aðalhlutverkið í James Bond

Fókus
Þriðjudaginn 2. desember 2025 06:30

Daniel Craig í hlutverki James Bond. Það er enn á huldu hver verður næsti Bond.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er enn á huldu hver mun taka við af Daniel Craig sem næsti njósnari hennar hátignar. Nú er nýtt nafn búið að blanda sér í þá umræðu og sá þykir nokkuð líklegur til að bregða sér í hluverk James Bond, eins og staðan er núna allavega.

Hingað til hafa leikarar á borð við Aaron Taylor-Johnson, Theo James, Idris Elba, James Norton og Martin Compston verið orðaðir við hlutverkið. En sá sem er hvað mest í umræðunni núna er breski leikarinn Callum Turner.

Turner er 35 ára gamall og hefur komið víða við á ferli sínum. Hann er sennilega best þekktur fyrir leik sinn í Fantastic Beasts-myndunum en þá fór hann einnig með veigamikið hlutverk í þáttunum Masters of the Air sem frumsýndir voru í fyrra. Turner er kærasti söngkonunnar Dua Lipa.

Í frétt News.co.au kemur fram að samkvæmt breska veðbankanum Coral hafi líkurnar á Turner verði næsti Bond aukist til muna og er hann núna talinn líklegastur í hlutverkið. Er það rakið til nýjustu myndar hans, Eternity, þar sem hann fer með aðalhlutverkið á móti Elizabeth Olsen.

Á eftir Turner koma leikararnir Theo James og Henry Cavill.

Vinna við næstu Bond-myndina þokast áfram en Amazon MGM Studios staðfesti nýlega að Steven Knight sé að skrifa handritið að nýju myndinni. Hann er best þekktur fyrir að hafa skrifað þættina vinsælu Peaky Blinders. Þá mun Denis Villeneuve leikstýra væntanlegri kvikmynd.

Callum Turner með kærustu sinni, Dua Lipa. Mynd/Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Danny Rolling og morðin sem urðu kveikjan að Scream-myndunum

Danny Rolling og morðin sem urðu kveikjan að Scream-myndunum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn