fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fókus

Þrettán nýir veitingastaðir opnuðu í Smáralind í dag

Fókus
Fimmtudaginn 27. nóvember 2025 12:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný mathöll opnaði í Smáralind í dag en hún ber heitið Garðurinn. Mathöllin markar nýtt tímabil í upplifun gesta, að því er segir í tilkynningu frá Smáralind.

„Mathöllin hefur að geyma fjölbreytt úrval veitingastaða og er umgjörðin allt önnur en áður hefur þekkst í verslunarmiðstöðvum á Íslandi,“ segir í tilkynningunni en í Garðinum er að finna þrettán veitingastaði sem bjóða allt frá fljótlegum og aðgengilegum mat til hágæða matarupplifunar og lengri opnunartíma.

Staðirnir eru: Gaeta Gelato, Sbarro, Serrano, Subway, 5 spice by XO, Topwings, Neó pizza, Yuzu, Abuela Lola, Funky Bhangra, Djúsí sushi, La Trattoria og Hjá Höllu.

„Svæðið sjálft er hannað af Basalt Arkitektum og rúmar tæplega 600 gesti. Áhersla var lögð á að skapa hlýlegt veitingasvæði þar sem fólki líður vel og getur notið matar og samveru í fallegu umhverfi. Hluti af mathöllinni er í nýrri viðbyggingu við Smáralind, einskonar garðskála, en stækkunin nemur tæplega 400 m2,“ segir í tilkynningunni.

Þá er tekið fram að Garðurinn sé staður þar sem fólk hittist, slappar af og hefur gaman en rýmið einkennist af ríkulegum gróðri og afslappaðri stemningu. Þá tengist nafnið líka sögu Smáralindar enda er mathöllin staðsett á því svæði sem áður gekk undir nafninu Vetrargarðurinn.

„Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum Smáralindar í Garðinum. Þar verður hugguleg stemning með reglulegum uppákomum á kvöldin og einstaklega ánægjulegt að Elín Hall verði með tónleika næstkomandi sunnudagskvöld kl. 20. Með tilkomu Garðsins verður veitingaúrval Smáralindar fjölbreyttara og betra en nokkru sinni fyrr. Nú geta gestir notið matar og drykkja í glæsilegu umhverfi og setið fram eftir kvöldi í góðum félagsskap, “ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Danny Rolling og morðin sem urðu kveikjan að Scream-myndunum

Danny Rolling og morðin sem urðu kveikjan að Scream-myndunum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn