fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Segir að ótrúlegir hlutir hafi gerst þegar hún hætti að borða ávexti, grænmeti og kolvetni

Fókus
Miðvikudaginn 15. janúar 2025 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún var einu sinni grænkeri en í dag borðar hún nær ekkert nema kjöt, smjör og egg og ætlar sennilega ekki að breyta því.

Áhrifavaldurinn Bella, sem gengur undir nafninu Steak and Butter Gal á samfélagsmiðlum, segir að magnaðir hlutir hafi gerst þegar hún hætti að borða ávexti, grænmeti og mat sem innihélt kolvetni fyrir sex árum síðan. Bendir hún á að andleg heilsa hennar hafi batnað, jafnvægi hafi komist á tíðahring hennar og þá hafi húðvandamál eins og bólur og exem horfið eins og dögg fyrir sólu.

„Ég er ekki að þjást lengur af lágu orkustigi og hormónarnir eru í góðu jafnvagi,“ segir hún í myndbandi þar sem hún sést leggja sér heilan grillaðan kjúkling til munns. Þá kveðst hún hafa lést um 11 kíló á þessum árum, það sé ekki lengur vont að fara á túr, kynhvötin sé meiri og þá sé orkustigið hennar mjög stöðugt og gott – sem og skapið.

Mail Online segir frá þessu og bendir á að mataræðið sem Bella fylgir gangi gegn ráðleggingum breskra heilbrigðisyfirvalda sem hvetja fólk til að borða fjölbreytta fæðu sem meðal annars inniheldur kolvetni. Þá hafi heilbrigðisyfirvöld bent á að mataræði sem inniheldur kjöt að mestu – sérstaklega nautakjöt og lambakjöt – tengist aukinni hættu á ýmsum sjúkdómum, til dæmis hjartasjúkdómum og krabbameinum.

Vinsældir carnivore-mataræðisins hafa aukist á undanförnum árum og á Íslandi er til dæmis Facebook-hópur tileinkaður þessum lífsstíl sem telur yfir fimm þúsund meðlimi. Segja margir að mataræðið hafi gert mikið fyrir þá. Meðal þekktra talsmanna carnivore-mataræðisins eru til dæmis Joe Rogan og Jordan Peterson.

Bella er einnig í þessum hópi og segir hún að líf hennar sé allt annað og betra eftir að hún byrjaði að fylgja þessu mataræði. Hún þurfi varla að leysa vind lengur og þá komi sárasjaldan svitalykt af henni.

En sem fyrr segir hefur kjötætumataræðið verið umdeilt eins og til dæmis kom fram í grein þeirra Guðrúnar Nönnu Egilsdóttur og Daggar Guðmundsdóttur, meistaranema í næringarfræði, í fyrrasumar.

Taka fyrir umdeilt mataræði hjá stæltum áhrifavöldum – Segja ómenntaða „sérfræðinga“ orsaka óreiðuna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short