Hjónin Barbara Björnsdóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Arnar Wedholm Gunnarsson, framleiðandi og framkvæmdastjóri CAOZ, hafa sett einbýlishús sitt í Breiðholti á sölu. Ásett verð er 237.900.000 kr.
Húsið er 308,6 fm, byggt árið 2006, þar af íbúðarrými 210,3 fm og bílskúr 28,3 fm. Til viðbótar eru um 70 fm á neðsta palli sem eru ekki skráðir.
Húsið er á þremur pöllum og skiptist í anddyri og hol, stofa, eldhús og borðstofu í alrými, þrjú svefnherbergi, eitt þeirra er hjónasvíta með faaherbergi og baðherbergi, setustofu, þrjú baðherbergi og gestasalerni, þvottahús og kjallara.
Í kjallara er 70 fm svíta með baðherbergi sem getur með breytingum nýst sem íbúð með sérinngangi.
Útgengt er út á pall frá eldhúsi, setustofu, hjónasvítu, þvottahúsi og kjallara. Garðurinn er glæsilegur, með fallegri lýsingu, og pallar og hellulagt að hluta til. Heitur pottur og útisturta.
Eignin er með aukinni lofthæð, hita í öllum gólfum, eldhústækjum frá Miele, sérsmíðuðum innréttingum og stein frá Fígaró á borðum í eldhúsi og baðherbergjum, að undanskilinu gestasalerninu. Einstakt útsýni yfir borgina. Lóðin er 702 fm fullfrágengin, með upphituðum bílastæðum fyrir framan bílskúr.
Barbara stefndi Margréti Friðriksdóttur, eiganda Fréttin.is, árið 2023 fyrir meiðyrði. Margrét hafði þá kallað dómarann lausláta mellu á samfélagsmiðlum eftir að Barbara dæmdi Margréti í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.