fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Fókus

Dísa um fyrstu kynni hennar og Júlís Heiðars – Heimurinn virtist staðráðinn að koma þeim saman

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 1. júní 2025 09:00

Júlí Heiðar og Þórdís Björk. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söng- og leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson sigruðu hug og hjörtu landsmanna í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr á þessu ári. Þau eiga þrjú börn, eitt saman og sitthvort úr fyrra sambandi, tvo ketti og hund. Þau hafa verið saman í fjögur ár en leiðir þeirra lágu saman mörgum árum fyrr. Það var svolítið eins og örlögin hafi gripið í taumana – oftar en einu sinni.

Þórdís, eða Dísa eins og hún er venjulega kölluð, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Í þættinum ræðir hún um móðurhlutverkið, ferilinn, Reykjarvíkurdætur og ADHD-greininguna. Brot úr þættinum má horfa á hér að neðan en smelltu hér til að horfa á hann í heild sinni.

video
play-sharp-fill

Þeirra fyrstu kynni voru á framhaldsskólaárunum. Dísa rifjar upp fyrsta skiptið sem hún sá hann. „Þá var hann að koma að flytja eitthvað lag á Söngvakeppni framhaldsskólanna.“

Júlí Heiðar og Kristmundur Axel höfðu sigrað keppnina árið áður og voru að koma aftur á svið til að flytja lagið. „Þá var ég að keppa fyrir Verzló og þá man ég að ég sá þá hlaupa upp á svið og alveg: „Þvílíkir pappakassar, halda að þeir eigi pleisið.“ Ég man eftir að það voru fyrstu kynnin, ég held að það segi samt meira um mig en hann.“

Svo hittust þau næst í prufum fyrir Listaháskólann. „Fólk er svona parað saman í senuvinnu og við vorum pöruð saman,“ segir hún.

Þau lentu saman í bekk í skólanum og ekki nóg með það þá fengu þau bæði hlutverk í söngleiknum Vorið vaknar hjá Leikfélagi Akureyrar eftir útskrift. Það var eins og heimurinn væri staðráðinn að ýta þeim saman.

Sjá einnig: Þórdís Björk einlæg um móðurhlutverkið: „Það ætlar enginn að eiga fyrsta barnið sitt og vera einn eða upplifa sig einan“

Þau léku einnig saman með leikhópnum Lottu og voru þá orðnir góðir vinir. Lífið gengur eins og það gerist, þau bæði voru í öðrum samböndum en svo kom dagurinn þar sem þau voru bæði einhleyp og Júlí ákvað að taka sénsinn.

Þórdís hefur í seinni tíð spurt Júlí hvernig hann hafi þorað að taka skarið, þar sem ef þetta myndi ekki ganga myndi vináttu þeirra líklegast ljúka. „En hann sagði: Æj, ég var bara alltaf búinn að vera skotinn í þér, þannig ég bara eitthvað, why not?

Júlí tók aldeilis skotið og skoraði, enda hefur parið verið saman í fjögur ár, eignast saman barn og fór hann á skeljarnar í maí 2022.

Hún segir nánar frá þeirra fyrstu kynnum í spilaranum hér að ofan. Smelltu hér til að horfa á þáttinn í heild sinni eða hlustaðu á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Fylgdu Þórdísi á Instagram og TikTok.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Hadid-systur ljóstra upp fjölskylduleyndarmáli – Hliðarspor föður þeirra bar ávöxt

Hadid-systur ljóstra upp fjölskylduleyndarmáli – Hliðarspor föður þeirra bar ávöxt
Fókus
Fyrir 4 dögum

Frúin gengur frá milljarðasamningi meðan Bieber glímir við fjárhagsvandræði

Frúin gengur frá milljarðasamningi meðan Bieber glímir við fjárhagsvandræði
Fókus
Fyrir 5 dögum

Lindsay Lohan neitar að hafa farið í andlitslyfingu – Þetta gerði hún í staðinn

Lindsay Lohan neitar að hafa farið í andlitslyfingu – Þetta gerði hún í staðinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates
Hide picture