fbpx
Miðvikudagur 07.janúar 2026
Fókus

Segir lag Tinnu vera alveg eins og bandarískur slagari og gerði tilraun til að sýna það – „Mér finnst þetta vera stolið“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 17. febrúar 2025 13:01

Benjamín, betur þekktur sem Séra Bjössi, finnst lag Tinnu mjög líkt lag bandarísku kántrísöngkonunnar Döshu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Seinna undanúrslitakvöld Söngvakeppninnar var um helgina og komust þrjú lög áfram í úrslit. Meðal þeirra var Tinna Óðinsdóttir með lagið Þrá.

Sjá einnig: Fólk aftur hneykslað yfir úrslitum Söngvakeppninnar – „Hvað er að ykkur?“

Lagið hefur verið að vekja talsverða athygli en þykir sumum það ansi líkt öðru lagi sem kom út í fyrra.

Tónlistarmaðurinn Benjamín Snær Höskuldsson, sem er í sveitinni Séra Bjössi, vakti athygli á þessu á TikTok helgina og hefur myndbandið fengið yfir 86 þúsundir áhorfa þegar fréttin er skrifuð. Hann sagði að konan hans hafi verið að horfa á Söngvakeppnina á laugardaginn og fundist lag Tinnu Óðinsdóttur, Þrá, vera mjög líkt lagi bandarísku kántrí- og poppsöngkonunnar Döshu, Austin (Boots Stop Workin’).

Dasha gaf út lagið í fyrra og rauk það upp vinsældalista um allan heim. Það naut einnig gífurlega vinsælda á TikTok og var í kjölfarið gerður dans sem sló rækilega í gegn.

@serabjossi #rúv ♬ original sound – Séra Bjössi

Benjamín prófaði að blanda saman lögunum, að setja rödd Döshu við lag Tinnu.

„Ég gerði smá tilraun. Ég tók Þrá lagið og tók raddirnar út, svo tók ég Austin lagið og setti bara raddir og prófaði að spila þetta saman og þetta er eiginlega nákvæmlega eins […] Hvað finnst ykkur? Mér finnst þetta vera stolið,“ segir hann.

Lögin má heyra hér að neðan.

Umræðan um líkindi laganna hefur verið nokkuð hávær og hafa fjöldi manns tekið undir með Séra Bjössa.

Uppfært 15:34: Tinna þvertekur fyrir að Þrá sé stolið í yfirlýsingu sem má lesa hér.

Það mætti segja að það sé árleg hefð fyrir því að fjalla um að lög í Söngvakeppninni séu lík, en þetta er líka ekki fyrsta fréttin í ár. VÆB drengirnir voru sakaðir af Ísraelsmönnum um að hafa stolið frægu brúðkaupslagi.

Sjá einnig: Ísraelsmenn saka VÆB um að hafa stolið þekktu lagi

Sjá einnig: Höfundur ísraelska lagsins sem sakar VÆB um lagastuld hefur sett málið í hendur lögmanna sinna – „Hreinn og beinn stuldur á minni vinnu“

Í fyrra var fjallað um að lag Heru væri skuggalega líkt lagi Demi Lovato. Norsku tvíburarnir sem kepptu fyrir hönd Svíþjóðar í fyrra fengu að heyra að þeirra lag, Unforgettable, væri líkt laginu Salva Mea með Faithless. Það er hægt að nefna fleiri sögur en ásakanir um meintan lagastuld virðast skjóta reglulega upp kollinum í kringum Eurovision.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Svífandi fuglar: Hildigunnur syngur lög og texta eftir Þorvald og Kristján

Svífandi fuglar: Hildigunnur syngur lög og texta eftir Þorvald og Kristján
Fókus
Í gær

Ragnhildur fer yfir kosti og galla Ozempic – Segir að lyfin séu ekki fyrir þennan hóp

Ragnhildur fer yfir kosti og galla Ozempic – Segir að lyfin séu ekki fyrir þennan hóp
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sambandið sterkara eftir að hafa bæði haldið framhjá

Sambandið sterkara eftir að hafa bæði haldið framhjá
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tengdaforeldrarnir eyðilögðu jólin með þessari gjöf – „Er ég að bregðast of hart við?“

Tengdaforeldrarnir eyðilögðu jólin með þessari gjöf – „Er ég að bregðast of hart við?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vandræðaskáldin kveðja liðið ár með söng – „2025 er horfið í hið græna gímald eilífðarinnar“

Vandræðaskáldin kveðja liðið ár með söng – „2025 er horfið í hið græna gímald eilífðarinnar“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Oprah varpar ljósi á óvænta en ánægjulega aukaverkun megrunarlyfsins

Oprah varpar ljósi á óvænta en ánægjulega aukaverkun megrunarlyfsins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segir Norðmenn ofmeta eigið mikilvægi – „Halda að heimurinn snúist um nokkra bændur í Skandinavíu“

Segir Norðmenn ofmeta eigið mikilvægi – „Halda að heimurinn snúist um nokkra bændur í Skandinavíu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þórdís Elva bað sinnar heittelskuðu

Þórdís Elva bað sinnar heittelskuðu