fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fókus

Athina Tsangari heiðruð á RIFF

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. september 2024 17:47

Athina Tsangari Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gríska kvikmyndagerðarkonan Athina Tsangari verður heiðruð á RIFF í ár sem upprennandi meistari og er vel að þeirri nafnbót komin, svo afkastamikil og ástríðufull sem hún hefur verið í listsköpun sinni og fræðimennsku í faginu.

Hún hefur jöfnum höndum unnið sem kvikmyndaframleiðandi og handritshöfundur, en er hvað þekktust fyrir að leikstýra stuttmyndum og leiknum myndum í fullri lengd allar götur frá því í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar. Meðal kunnustu verka hennar eru The Slow Business of Going frá 2000, Attenberg sem frumsýnd var 2010 og Chevalier frá 2015. Hún var einnig meðframleiðandi í myndum landa síns Yorgos Lanthimos og má þar nefna Kinetta frá 2005, Dogtooth sem fullgerð var fjórum árum síðar og Alps sem kom fyrir sjónir kvikmyndaunnenda 2011.

Tsangari er hámenntuð í fagi sínu og hefur sótt sér námið í bæði heimalandi sínu og við Háskólann í New York þar sem hún lærði kvikmyndaframleiðslu, sem og við Texasháskólann í Austin í Bandaríkjunum þar sem hún lagði stund á leikstjórnarfræðin. Hún hefur á seinni árum verið vinsæll gestafyrirlesari, meðal annars við Harvard-háskólann vestanhafs, ásamt því að stofna til og stjórna Alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni í Austin í Texas.

Tsangari er aufúsugestur á RIFF í ár, en auk hennar verður suður-kóreski leikstjórinn Bong Joon-ho heiðraður á hátíðinni ár, svo og heiðursgestirnir Jonas Åkerlund og Nastassja Kinski.

RIFF alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram 26. september til 6. október.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Í gær

Mikill hraði og streita farin að birtast í heilsuleysi hjá stórum hópi Íslendinga

Mikill hraði og streita farin að birtast í heilsuleysi hjá stórum hópi Íslendinga
Fókus
Í gær

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga
Fókus
Í gær

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum
Fókus
Fyrir 1 viku

Sannleikurinn á bak við skilnað Pink og hvers vegna hún harðneitaði fréttum

Sannleikurinn á bak við skilnað Pink og hvers vegna hún harðneitaði fréttum
Fókus
Fyrir 1 viku

Flutti til Íslands en gafst upp eftir sjö mánuði – „Mér fannst ég vera að missa vitið“

Flutti til Íslands en gafst upp eftir sjö mánuði – „Mér fannst ég vera að missa vitið“